Iðnaðarverkfræði



Ef þú hefur gaman af tækni, hefur vald á stærðfræði, eðlis- og efnafræði, finnst gaman að starfa með fólki og langar að leggja stund á hagnýtt og skemmtilegt háskólanám, þá er iðnaðarverkfræði áhugaverður kostur fyrir þig. 

Iðnaðarverkfræðnám er sérlega fjölbreytt og reynslan sýnir að iðnaðarverkfræðingar frá HÍ eru afar eftirsóttir starfskraftar. Þeir geta oftast valið sér starfsvettvang og veljast gjarnan til ábyrgðastarfa hér á landi sem erlendis. Þeir starfa sem sérfræðingar eða stjórnendur til dæmis í fjármálafyrirtækjum, í iðnfyrirtækjum eða í ráðgjafarfyrirtækjum. 

Í náminu fá nemendur þjálfun í að takast á við margskonar tæknileg viðfangsefni þar sem saman þurfa að fara traustur tæknilegur grunnur og færni í mannlegum samskiptum til að velja hagstæðustu lausnir. 

Námið fer fram í formi fyrirlestra og hópverkefna og tekist á við raunveruleg viðfangsefni í tengslum við fyrirtæki og stofnanir. Nám í iðnaðarverkfræði er í senn hagnýtt og skemmtilegt auk þess að bjóða upp á góða starfs- og tekjumöguleika. 

Iðnaðarverkfræði, BS, 180 einingar (meira) 

Vélin, nemendafélag

deila á facebook

AQFood Aquatic Food Production - Nordic Master