Hugbúnaðarverkfræði



Hugbúnaðarverkfræði er afar hagnýtt nám sem snýst um beitingu kerfisbundinna aðferða við að þróa, reka og viðhalda hugbúnaði.

Í náminu læra nemendur hönnun, forritun og prófun hugbúnaðar. Stjórnun hugbúnaðarverkefna er einnig veigamikill þáttur og snýst um að áætla og stjórna mannauði, tíma, fjármagni, greina áhættu og meta afurðir. 

Starfsvettvangur hugbúnaðarverkfræðinga er afar fjölbreyttur. Meðal þess sem þeir fást við er stjórnun hverskyns hugbúnaðartengdra verkefna og þeir eru eftirsóttir stjórnendur deilda, fyrirtækja og stofnana þar sem hugbúnaður gegnir mikilvægu hlutverki. 

HÍ var einn af frumkvöðlum á alþjóðavísu í að bjóða nám í hugbúnaðarverkfræði. Greinin er ört vaxandi og deildin fylgist vel með skilgreiningu náms á heimsvísu og er í tengslum við aðra háskóla á þessu sviði. Deildin hefur á að skipa kennurum sem hafa sérhæft sig í hugbúnaðarverkfræði. 

Hugbúnaðarverkfræði, BS, 180 einingar (meira)

Nörd, nemendafélag

deila á facebook

AQFood Aquatic Food Production - Nordic Master