Námskeið í WordPress 19. maí
WordPress er einfalt vefumsýslukerfi og líklega eitt hið vinsælasta í netheimum um þessar mundir. Menntasmiðja hefur veitt þjónustu við slíkt kerfi frá áramótum og kallast það Menntaskrif, [http://skrif.hi.is] og eru þau ætluð til efnisgerðar og miðlunar í þágu náms, kennslu og rannsókna.
Meginmarkmið námskeiðsins eru að auðvelda starfsfólki að :
• halda úti eigin vefsvæði með upplýsingum um starf sitt, menntun og feril
• setja upp einfalda vefi vegna kennslu, samstarfs og/eða rannsóknarverkefna
Kennari: Þorvaldur Pálmason
Staður: Tölvustofa H205
Ath: Hægt er að velja milli tveggja tímasetninga með því að haka við valkost hér að neðan.

