Um brautina



Markmið

Haustið 2005 hófu fyrstu nemendurnir meistaranám í hinni nýju þverfræðilegu námsleið í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands. Upphaflega stóðu sex deildir að náminu (þ.e. félagsvísindadeild, hugvísindadeild, lagadeild, raunvísindadeild, verkfræðideild og viðskipta- og hagfræðideild), en nú eru öll fimm fræðasvið Háskóla Íslands þátttakendur í náminu (þ.e. félagsvísindasvið, heilbrigðisvísindasvið, hugvísindasvið, menntavísindasvið og verkfræði- og náttúruvísindasvið).


Námsbrautinni var og er ætlað að koma til móts við þarfir samfélagsins - sem og vaxandi áhuga nemenda - á rannsóknum, þjónustu og stefnumótun tengdri umhverfismálum og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Meginmarkmið námsins er að útskrifa nýja kynslóð fagfólks sem hefur haldgóða þekkingu og færni á sviði umhverfis og auðlindafræða og getur unnið þvert á fræði- og fagmúra.

Slík þekking:

  • auðveldar mönnum að greina og skilja orsakir og afleiðingar helstu umhverfisvandamála samtímans og að benda á vænlegar leiðir til úrbóta.
  • stuðlar að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda og umhverfis út frá forsendum náttúru og lífríkis, efnahagslífs og samfélags.

Menntunarmarkmið námsbrautar í umhverfis- og auðlindafræðum (pdf)

Tölfræði nemenda

Rúmlega 80 nemendur voru skráðir í nám í umhverfis- og auðlindafræðum á vormisseri 2011, og hefur 41 nemandi útskrifast formlega. Nemendur frá yfir 20 þjóðlöndum stunda, eða hafa stundað, nám við námsbrautina.

Fyrsti nemandinn brautskráðist frá umhverfis- og auðlindafræðum í júní 2006, en það var María Eugenia Cauhépé frá Argentínu. Hún útskrifaðist frá viðskipta- og hagfræðideild.

deila á facebook

Dr. Brynhildur Davíðsdóttir: Sjálfbærni og endurreisn

Fyrirlestur af heimasíðu Háskóla Íslands

 

Frá fyrirlestri Dr. Robert Costanza í Háskóla Íslands:

 Using the global recession as an opportunity to create a sustainable and desirable future

Fyrirlestrarglærur (ppt, 29 Mb)

Hljóðupptaka (wma, 41 Mb)