Inntökuskilyrði



Inntökuskilyrði

Umsækjendur þurfa alla jafna að hafa lokið BS- eða BA-prófi eða öðru háskólanámi sem metið er jafngilt. Að jafnaði er miðað við 1. einkunn í grunnnámi.

Við skipulagningu námsins er gert ráð fyrir að nemendur hafi bakgrunn í einu af eftirtöldum sviðum: Verkfræði, raunvísindum, félagsvísindum, lögfræði, hugvísindum, menntavísindum, heilbrigðisvísindum eða hagfræði/viðskiptafræði. Hæfir umsækjendur með annan bakgrunn geta þurft að auka við sig þekkingu og færni á ákveðnum sviðum telji stjórn og umsjónarmaður námsins þörf á því.

Námsstjórnin fjallar um hverja umsókn. Við inntöku nemenda byggir hún meðal annars á:

  • Fyrstu háskólagráðu(m) og frammistöðu
  • Greinargerð umsækjanda
  • Umsögnum (kennara/atvinnurekanda)
  • Reynslu og fyrri störfum, einkum að rannsóknum

Nánari upplýsingar um inntökuskilyrði vegna meistaranáms í umhverfis- og auðlindafræðum veitir umsjónarmaður námsins, Brynhildur Davíðsdóttir, bdavids@hi.is

Reglur um meistara- og doktorsnám í umhverfis- og auðlindafræðum

Almenn inntökuskilyrði í Háskóla Íslands 

deila á facebook

Dr. Brynhildur Davíðsdóttir: Sjálfbærni og endurreisn

Fyrirlestur af heimasíðu Háskóla Íslands

 

Frá fyrirlestri Dr. Robert Costanza í Háskóla Íslands:

 Using the global recession as an opportunity to create a sustainable and desirable future

Fyrirlestrarglærur (ppt, 29 Mb)

Hljóðupptaka (wma, 41 Mb)