Umhverfis- og auðlindafræði
Meistaranám í umhverfis- og auðlindafræðum er spennandi 120 ECTS eininga rannsóknatengt nám sem miðast við tvö ár. Námið er kjörinn valkostur fyrir fólk sem lokið hefur BS- eða BA-gráðu og hefur áhuga á að breikka þekkingargrunn sinn, auka starfsmöguleika í framtíðinni, sem og að auka færni í að takast á við vandamál og verkefni á sviðum umhverfis- og auðlindafræða. Þekking sú sem nemendur öðlast gerir þeim kleift að vinna þvert á fagmúra og sjá viðfangsefni sín í víðara samhengi en gengur og gerist innan hefðbundinna fræðigreina. Að námi loknu útskrifast nemendur með MS- eða MA-gráðu í umhverfis- og auðlindafræðum.
Starfsvettvangur að námi loknu er mjög fjölbreyttur, svo sem í ráðgjöf á sviði umhverfis- og orkumála, hjá fyrirtækjum með virka umhverfisstefnu, í stjórnsýslu á sveitarstjórnarsviði og landsvísu, við rannsóknir hjá stofnunum og einkaaðilum, við fjölmiðla og við kennslu.
Bæklingur á ensku um námið (pdf)
Einstakt námstækifæri í alþjóðlegu umhverfi
Allir nemendur ljúka ákveðnum kjarnanámskeiðum sem gefa sameiginlegan breiðan grunn í umhverfisvísindum, auðlindastjórnun, hugmyndafræði, stefnumótun og ákvarðanatöku, siðfræði náttúrunnar og umhverfisstjórnun fyrirtækja. Síðan eru valnámskeið í boði innan flestra deilda Háskóla Íslands, en hin faglega breidd skólans býður upp á að móta sérhæfingu á sviði umhverfis- og auðlindafræða sem hentar hverjum og einum nemanda.
Öll kjarnanámskeið eru kennd á ensku, sem og hluti valnámskeiða, og hljóta því nemendur góða þjálfun í að tjá sig á enskri tungu, bæði í ræðu og riti. Bakgrunnur nemenda er auk þess sérlega fjölbreyttur, bæði hvað varðar grunngráðu og þjóðerni. Nemendafélag námsbrautarinnar, Gaia, heldur uppi öflugu fræðslu- og félagsstarfi.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Dr. Brynhildur Davíðsdóttir: Sjálfbærni og endurreisn
Fyrirlestur af heimasíðu Háskóla Íslands


