Hlutverk vísindasviðs er að annast sameiginleg málefni Háskólans er lúta að rannsóknum, svo sem ráðgjöf við akademíska starfsmenn og stofnanir. Vísindasviði er ætlað að stuðla að samstarfi milli deilda og stofnana á vettvangi rannsókna. Vísindasvið starfar í nánum tengslum við vísindanefnd háskólaráðs. Helstu verkefni sviðsins lúta að rannsóknatengdum sjóðum, mati á störfum akademískra starfsmanna, störfum dómnefnda vegna framgangs- og nýráðninga. Einnig sér sviðið um upplýsingaöflun fyrir helstu staðtölur um Háskólann. Skrifstofan er í norðurálmu Aðalbyggingar. Sími 525 5242. Starfsmenn vísindasviðs.
Verkefni
|
Sjóðir og styrkir |
Gagnlegar upplýsingar |
Aðrir tenglar |

