Útibú og sérsöfn

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn rekur nokkur útibú og sérsöfn. Bókastofur og smærri söfn eru víða um Háskólasvæðið. Í Eirbergi er safn fyrir hjúkrunarfræðinema og læknanema og Heilbrigðisvísindabókasafn er safnkostur einkum á sviði heilbrigðisvísinda. Í Haga er safn fyrir nemendur í lyfjafræði, í Lögbergi fyrir laganema og í Norræna húsinu fyrir nemendur í norrænum tungumálum. Bókasafn í Skógarhlíð 10 er fyrir nemendur í sjúkraþjálfun og í VR-II og Öskju fyrir nemendur á verk- og náttúruvísindasviði.

Í bókasafni menntavísindasviðs við Stakkahlíð er veitt almenn bókasafnsþjónusta árið um kring. Safnið er lokað er í 2 - 3 vikur í júlí. Í safninu er sérstakt kennslugagnasafn fyrir leik- og grunnskólastig þar sem stúdentum er leiðbeint um námsgögn og kennsluaðferðir í undirbúningi fyrir vettvangsnám. Upplýsingaþjónusta og aðstoð við heimildaleit er veitt í safninu og kennsla í upplýsingaöflun er felld inn í inngangsnámskeið í upphafi náms.

Bókasafn Íþróttafræðaseturs á Laugarvatni er sérhæft í íþrótta og heilsufræðum og hefur lesrými og rými fyrir hópavinnu sem og sæti við tölvur.

Síðast breytt 22.10.2010.

deila á facebook