Útgáfa

Háskóli Íslands stendur fyrir útgáfu af ýmsu tagi. Hundruð fræðibóka koma út á hverju ári, frá mismunandi stofnunum skólans og fræðimönnum sem honum tengjast. Stofnanir af þessu tagi eru t.d. Háskólaútgáfan, Bókmenntafræðistofnun, Lagastofnun, Hugvísindastofnun og fleiri sem standa bæði að útgáfu fræðirita, bóka og bókaraða.

Fræðirit og greinar

Kennarar og nemendur skólans birta fjölmargar greinar á ári hverju, bæði í innlendum og erlendum tímaritum. Margir vísindamenn skólans birta greinar í virtustu tímaritum heims á sínu sviði. Nemendur margra deilda standa fyrir útgáfu fræðitímarita á sínu sviði og er oft um að ræða fyrstu skref ungra vísindamanna á vettvangi útgáfumála. Stofnanir skólans, s.s. Félagsvísindastofnun og Hagfræðistofnun, gefa reglulega út skýrslur um ýmis málefni sem snerta fjölmörg svið þjóðlífsins.

Fjölbreytt kynningarefni

Háskóli Íslands gefur árlega út fjölbreytt kynningarefni um námið og þjónustuna við skólann. Háskólinn lítur á það sem skyldu að bjóða mjög fjölbreytt nám sem stenst afar strangar alþjóðlegar kröfur. Útgáfa á kynningarefni er meðal annars liður í því að auðvelda framhaldsskólanemum að velja sér námsleiðir við hæfi úr þeirri miklu flóru námsleiða sem standa nemendum til boða. Þá er markmiðið með útgáfu kynningarefnis að auðvelda nemendum að feta fyrstu sporin í háskólanámi.

Veftímarit:

Netla

Veftímarit um uppeldi og menntun gefið út af Menntavísindasviði

Stjórnmál og stjórnsýsla

Veftímarit um stjórnmál og stjórnsýslu gefið út af Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála

 

deila á facebook