Umsóknarferli

 Umsóknarferlið- Erasmus kennara-/ og starfsmannaskipti

  1. Kennari/starfsmaður fyllir út rafræna umsókn um kennara- eða starfsmannaskipti og sendir inn. Umsóknin er einnig prentuð út og undirrituð af umsækjanda og deildarforseta, forstöðumanni eða alþjóðafulltrúa deildar, eftir því sem við á. Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands á Háskólatorgi tekur við umsóknum, afgreiðir þær og úthlutar styrkjum.
  2. Með umsókn á að fylgja áætlun um heimsóknina,"teaching programme" fyrir kennara og "training agreement" fyrir starfsfólk. Áætlunin er samþykkt af gestaskóla eða -stofnun og send til Alþjóðaskrifstofu, t.d. sem viðhengi. Ef áætlunin er ekki tilbúin þegar sótt er um, er mikilvægt að a.m.k. drög að áætlun fylgi ásamt boðsbréfi frá gestaskóla, það styrkir umsóknina. Ef  undirritaðri umsókn er skilað án áætlunar verður hún ekki afgreidd heldur sett á biðlista þar til þessum gögnum hefur verið skilað inn. 

    Í kennsluáætlun og starfsþjálfunarplani er gert grein fyrir markmiðum og fyrirkomulagi gestakennslunnar/heimsóknarinnar. Það er samkomulagsatriði milli kennara/starfsmanns og gestaskóla hver sér um að ganga frá skjalinu (aðalatriðið er að það sé skýrt hvað á að gera á meðan dvöl stendur – þarf alls ekki að vera langur texti). 

    Boðsbréf frá gestaskóla/gestastofnun má vera tölvupóstur og þarf ekki að segja annað en að viðkomandi sé boðið að koma sem „Erasmus visiting teacher“ eða í „Erasmus Staff Training til gestaskólans/gestastofnunar tímabilið X sem ekki þarf að skilgreina nákvæmlega (t.d. „one week in April or May).

  3. Umsækjandi fær svar frá Alþjóðaskrifstofu með tölvupósti um hvort hann hljóti styrk og hversu há áætluð styrkupphæð er.
  4. Nánar um úthlutunarreglur og greiðslufyrirkomulag.

Umsóknareyðublöð

Kennara-/starfsmannaskipti skólaárið 2012-2013 - tímabilið gildir frá júní 2012 til september 2013

Kennara-/starfsmannaskipti skólaárið 2011-2012 - tímabilið gildir frá júní 2011 til september 2012 

Umsóknarfrestir

Umsóknarfrestur er 15. maí. Umsóknir sem berast eftir 15. maí fara á biðlista.

deila á facebook