Umsókn um nám



Velkomin í Háskóla Íslands.

Engin skólagjöld eru í Háskóla Íslands en árlegt skrásetningargjald er 45.000 kr. 

Námsráðgjafar Háskóla Íslands, starfsfólk Nemendaskrár og starfsfólk fræðasviða og deilda veita fúslega upplýsingar og aðstoð.

Frestur til að skila umsóknum og ferli umsókna er misjafnt eftir því hvaðan umsækjendur koma og um hvaða nám er sótt.

Grunnnám, íslenskir umsækjendur

Umsóknarfrestur í grunnnám sem hefst á vormisseri 2010 er t.o.m. 30. nóvember 2009.

Framhaldsnám, íslenskir umsækjendur

Frestur til að sækja um framhaldsnám er til 15. apríl en til 15. október ef sótt er um nám sem hefst á vormisseri. 

Erlendir umsækjendur

Fyrir erlenda stúdenta er umsóknarfrestur í grunn- og framhaldsnám til 1. febrúar ár hvert.

Skiptistúdentar

Þeir sem hyggjast taka hluta af námi sínu sem skiptistúdentar við Háskóla Íslands þurfa að sækja um fyrir 1. maí (1. október ef sótt er um innritun í framhaldsnám á vormisseri).