Afgreiðsla umsókna um framhaldsnám tekur að jafnaði 4-6 vikur. Rafrænt umsóknareyðublað er aðgengilegt hér á umsóknartíma.
Umsóknarfrestur í framhaldsnám (nám á meistarastigi og doktorsnám) er til 15. apríl en til 15. október ef sótt er um innritun í framhaldsnám á vormisseri (þ.e. ef deildir heimila innritun á vormisseri).
Ekki verður tekið við síðbúnum umsóknum.
Engin skólagjöld eru í Háskóla Íslands en árlegt skrásetningargjald er kr. 60.000 (kr. 32.500* ef sótt er um innritun á vormisseri).
Reglur deilda kveða á um nauðsynlegan undirbúning og prófgráður sem krafist er sem undanfara framhaldsnáms í hverju tilviki. Misjafnt er hvaða fylgigagna er krafist með umsókn. Nánari upplýsingar má finna í Kennsluskrá og á vefjum fræðasviða og deilda.
(RAFRÆN UMSÓKN)
*Gjaldskrá í endurskoðun, gjaldið hækkar frá og með skólaárinu 2012-2013

