Samningar Háskóla Íslands við erlenda háskóla:
Stúdentar geta sótt um að fara í skiptinám í einhvern af samstarfsskólum Háskólans í eitt eða tvö misseri og jafnvel í eitt ár. Í Nordplus og Erasmusskiptum er styrkur í boði, ferðastyrkur og dvalarstyrkur. Einnig er góður námsstyrkur fyrir einn stúdent á ári við Háskólann í Minnesóta í Bandaríkjunum. Í öðru skiptinámi felst ávinningurinn í niðurfelldum eða mikið lækkuðum skólagjöldum og gestaskóli aðstoðar við húsnæðisleit, en stúdentar greiða árleg skráningargjöld við HÍ.
Samstarfsskólana, umsóknarfresti og umsóknareyðublöð finnur þú á undirsíðunum til hægri undir hverri áætlun eða neti fyrir sig. Undir "Tvíhliðasamningar" finnur þú einstaka háskóla sem HÍ hefur gert samstarfssamning við tvíhliða. Þetta eru aðallega skólar í Bandaríkjunum, Kanada, Suður-Ameríku, Ástralíu, Japan, Kína, Tælandi, Tævan, Suður-Kóreu og Rússlandi.
Hérna finnur þú alla samstarfsskólana eftir löndum. Athugið að á þessum lista kemur ekki fram um hvers konar samning eða samstarf er að ræða, þ.e.hvort skólinn er hluti af neti eins og Maui eða Crepuq neti, eða hvort skólinn sé Erasmus eða Nordplus skóli. Þær upplýsingar eru á undirsíðunum til hægri.

