Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands er opin öllum nemendum og starfsmönnum Háskólans sem vilja leggja stund á sjálfsnám í tungumálum. Í Tungumálamiðstöðinni er fjölbreytt úrval námsgagna til tungumálanáms sem styðjast við nýjustu upplýsingatækni. Þar er einnig aðstaða fyrir nemendur og kennara til að vinna saman í litlum hópum.
Tungumálamiðstöðin skipuleggur margs konar tungumálanámskeið til að mæta þörfum nemenda og starfsfólks. Nemendum stendur til boða nemandastýrt nám í fimm tungumálum: dönsku, frönsku, ítölsku, spænsku og þýsku. Námskeið þessi eru metin til eininga. Á hverju misseri er einnig boðið upp á tungumálanámskeið fyrir starfsfólk. Auk þessa býður Tungumálamiðstöðin upp á fjarnám í íslensku sem erlendu máli með eða án aðstoðar kennara á vefnum, Icelandic Online
Starfsfólk Tungumálamiðstöðvar
Forstöðumaður Tungumálamiðstöðvar er Eyjólfur Már Sigurðsson. Auk hans starfa nemendur í stundavinnu.

