Tungumálamiðstöð HÍ skipuleggur margskonar tungumálanámskeið til að mæta þörfum nemenda og starfsmanna HÍ. Rík áhersla er lögð á nemandastýrt nám þar sem nemandinn stjórnar öllum helstu þáttum námsins með aðstoð kennara. Hann setur sér markmið, velur mismunandi aðferðir í náminu og vinnur með efni sem tengist áhugasviði eða sérgrein hans. Þannig er tungumálanámið sniðið að þörfum hvers nemanda.
Tungumálanámskeið fyrir nemendur HÍ:
Tungumálamiðstöð HÍ býður upp á tungumálanámskeið sem eru opin öllum nemendum HÍ, þeim að kostnaðarlausu. Á haustmisseri 2011verður boðið upp á námskeið í dönsku, frönsku, ítölsku, spænsku og þýsku. Námskeið í dönsku og þýsku eru einungis fyrir þá sem hafa undirstöðuþekkingu í þessum tungumálum en námskeið í frönsku og spænsku eru bæði fyrir byrjendur og lengra komna og er þá skipt í hópa eftir getu. Námskeið í ítölsku er fyrir byrjendur og þá sem hafa lágmarksþekkingu í ítölsku.
Eftirfarandi námskeið verða í boði fyrir nemendur HÍ á vormisseri 2012:
DAN001G Sjálfsnám í dönsku II (2 - 6 ein)
FRA004G Sjálfsnám í frönsku II (2 - 6 ein)
ÍTA002G Ítalska fyrir byrjendur II (6 ein)
SPÆ004G Sjálfsnám í spænsku II (2 - 6 ein)
ÞÝS004G Sjálfsnám í þýsku II (2 - 6 ein)
Vinsamlegast athugið að þessi námskeið eru ekki fyrir algera byrjendur. Byrjendur sem hófu nám í frönsku, spænsku og ítölsku á haustmisseri 2011 geta haldið áfram á þessu misseri. Tekið verður við nýjum byrjendum í frönsku, spænsku og ítölsku á haustmisseri 2012. Skráning í öll þessi námskeið fer fram í Nemendaskrá HÍ, Háskólatorgi, eða á Uglu.

