Ágætu nýnemar.
Verið hjartanlega velkomin í Háskóla Íslands. Hér finnið þið ýmsar gagnlegar upplýsingar um námið og skólann.
Á vefsetri stúdenta hefur nú verið opnaður upplýsingavefur fyrir nýnema. Þar má finna ýmsar upplýsingar sem eru nauðsynlegar hverjum nýnema. Þar má einnig nálgast dagskrá nýnemadaga.
Veflykill og aðgangur að Uglu
Við lok rafrænnar skráningar fá umsækjendur veflykil sem þeir nota til að fylgjast með umsókninni á nynemar.hi.is, en notendanafn er kennitala hvers og eins. Veflykillinn fylgir með gíróseðli fyrir skráningargjaldinu. Eftir að nemandi fær inngöngu og hefur greitt skrásetningargjald birtist hnappur á þeirri síðu og getur nemandinn þá sótt aðgang sinn að Uglu. Á Uglu geta nemendur fylgst með námsferli sínum og náð í allar helstu upplýsingar um námið. Prentkvóta má nálgast í Uglu, á þjónustuborðinu og í smiðju á menntavísindasviði. Hafi veflykill misfarist eða er ekki fyrir hendi geta nemendur fengið notendanafn og aðgangsorð á þjónustuborðinu í Háskólatorgi.
Móttaka nýnema
Deildir skólans byrja á mismunandi tímum, allt frá 17. - 31. ágúst. Móttökur deilda og fræðasviða raðast því á þetta tímabil. Yfirlit yfir móttöku deilda og fræðasviða.
Sameiginleg dagskrá fyrir nýnema, Nýnemadagar, verða haldnir 31. ágúst - 4. september. Þá verður ýmis þjónusta við skólann kynnt, nemendafélög kynna sig og ýmis skemmtiatriði verða á Háskólatorgi. Dagskrá Nýnemadaga.
Í viðburðadagatali Háskólans er hægt að kynna sér fyrirlestra, ráðstefnur, málþing og ýmsar uppákomur sem eru opnar öllu háskólasamfélaginu.
Kennslualmanak Háskólaársins 2009-2010
Þar er að finna allar helstu dagsetningar er snúa að náminu.
Stundatöflur
Stundatöflur er að finna á vefsíðum allra deilda. Einnig birtist stundatafla hvers og eins nemanda á heimasvæði hans í Uglu.
Þjónustuborð
Þegar nemendur þurfa þjónustu af einhverju tagi leita þeir fyrst til þjónustuborðsins í Háskólatorgi en þar er afgreiðsla fyrir allar helstu þjónustueiningar. Þar má fá upplýsingar um nám og fá ýmis vottorð og yfirlit yfir námsferla og þar skila nemendur inn læknisvottorðum vegna veikinda í prófum. Reiknistofnun Háskólans er einnig með útibú á þjónustuborðinu og þar geta nemendur t.d. fengið aðstoð við að tengjast netinu og prenta út.
Breyting á skráningu
Þurfi nemendur að breyta skráningu sinni í námskeið eða deild hafa þeir samband við Nemendaskrá, nemskra@hi.is. Þurfi þeir hins vegar ráðgjöf vegna breytinga á námi hafa þeir samband við Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands eða senda fyrirspurn á radgjof@hi.is. Upplýsingar um námið sjálft má einnig fá hjá hverri deild fyrir sig.
Námsferill og einkunnir
Nemendaskrá veitir upplýsingar um námsferil og einkunnir.
Skrifstofur fræðasviða og deilda
Nemendur fá allar upplýsingar um skipulag og fyrirkomulag náms á skrifstofum fræðasviða eða deilda, þ.e. upplýsingar um stundaskrár, aðstoð við val á námskeiðum, upplýsingar um námsskipunarreglur, einstök námskeið, próf, verkefni og skil þeirra, ásamt upplýsingum um reglur fræðasviða og deilda og möguleika á skiptinámi erlendis. Allar nánari upplýsingar um skrifstofur fræðasviða og deilda, þjónustu þeirra og starfsemi, má finna á vefjum fræðasviða og deilda.
Námsleiðir og kennsluskrá
Kennsluskrá Háskóla Íslands og upplýsingar um námsleiðir
Bækur og tímarit
Bókalista fyrir flestar námsgreinar er að finna hjá Bóksölu stúdenta. Á Landsbóksafni Íslands - Háskólabókasafni er námsbókasafn í tengslum við námskeið í Háskóla Íslands. Á safninu er gott úrval tímarita og hægt er að leita að safnkosti í Gegni.
Skiptibókamarkaður
Stúdentamiðlun sér um skiptibókamarkað á vefnum þar sem nemendur geta leitað að notuðum bókum og skráð bækur til sölu. Einnig er skiptibókamarkaður á Uglunni.
Alþjóðaskrifstofa
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins, ask@hi.is, veitir upplýsingar um nám erlendis og aðstoðar háskólastúdenta vilji þeir gerast skiptinemar.
Húsnæði, leikskólar og atvinna
Félagsstofnun stúdenta veitir nemendum HÍ margvíslega þjónustu. Á vegum FS eru m.a. Stúdentagarðar, Háma og Kaffistofur stúdenta, Leikskólar FS og Stúdentamiðlun.
Aðstoð
Ef þú átt við fötlun að stríða, sértæka námserfiðleika, s.s lesblindu eða langvarandi veikindi sem hafa áhrif á nám þitt hefur þú samband við Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands.
Félagslíf
Við Háskólann er öflugt félagslíf og tugir nemendafélaga sjá til þess að engum þarf að leiðast eftir að heimanámi lýkur. Á vefsíðu Stúdentaráðs má finna allar upplýsingar um félagslífið.
Íþróttahús
Þrjú íþróttahús eru við Háskólann, við Sæmundargötu, á Háteigsvegi og á Laugarvatni. Upplýsingar um íþróttahús.
Stúdentakort
Allir nýnemar fá afhent stúdentaskírteini. Skírteinið er auðkenniskort stúdenta og er notað við ýmis tækifæri s.s. í prófum, í lesrýmum skólans og í Þjóðarbókhlöðu. Skilríkið nýtist einnig sem afsláttarkort á þeim stöðum þar sem SHÍ hefur aflað afslátta fyrir nemendur. Til þess að kortið sé gilt er mikilvægt að á því sé skýr andlitsmynd af handhafa þess. Nýnemar skulu setja mynd af sér fyrir skírteinið inn á þar til gert svæði á Uglunni.


