Hlutverk vísindasviðs er að annast sameiginleg málefni Háskólans er lúta að rannsóknum, svo sem ráðgjöf við akademíska starfsmenn og stofnanir. Vísindasviði er ætlað að stuðla að samstarfi milli deilda og stofnana á vettvangi rannsókna. Vísindasvið starfar í nánum tengslum við vísindanefnd háskólaráðs.
Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands er þjónustustofnun fyrir íslenskt þekkingarsamfélag sem aðstoðar við öflun styrkja til þekkingaröflunar, greiðir fyrir hagnýtingu þekkingar og styrkir getu einstaklinga og samfélagsins til að takast á við verkefni morgundagsins.


