Margs konar þjónusta og úrræði eru í boði fyrir nemendur, bæði á vegum stofnunarinnar sjálfrar sem og á vegum Stúdentaráðs og hagsmunafélaga nemenda. Nemendur eru hvattir til að hafa samband við jafnréttisfulltrúa HÍ eða jafnréttisfulltrúa Stúdentaráðs þar sem hægt er að fá frekari upplýsingar um þau úrræði sem í boði eru.

