Sumarnám

Nemendum við Háskóla Íslands stendur til boða að taka þátt í sumarnámi við ýmsa skóla erlendis. Dagsetningar fyrir sumarið 2012 verða settar inn jafnóðum og þær berast.

Utrecht Summer Schools in Science

Utrecht University heldur sumarnámskeiðið „Natural and life Sciences“ dagana 20. – 31. ágúst 2012.  Námskeiðið er ætlað nemum í raungreinum sem eru að ljúka BS námi eða hafa nýhafið meistaranám. Námskeiðið veitir ECTS-einingar og er metið inn í nám við H.Í. ef forsvarsmaður deildar samþykkir námsáætlun. Nemendur H.Í. þurfa ekki að greiða námskeiðsgjöld, auk þess er styrkir eru í boði.


Sumarnám í Kína

Nordic Centre við Fudan háskóla heldur sumarnámskeiðið Introduction to Modern China 9.-28. júlí 2012. Námskeiðið veitir ECTS-einingar og fæst metið inn í nám við HÍ, ef forsvarsmaður deildar samþykkir námsáætlun. Námskeiðið er fyrir grunnema, ekki er nauðsynlegt að hafa mikla þekkingu á Kína til þess að taka þátt í námskeiðinu. Námskeiðið skiptist í tvo hluta, Chinese Economy og Chinese Politics og velja þátttakendur annan hvorn. 

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu, en þeir þurfa sjálfir að greiða ferðakostnað, húsnæði og uppihald. Umsóknarfrestur er 22. mars 2012. Umsóknarblaði á að skila til Alþjóðaskrifstofu HÍ, Háskólatorgi ásamt yfirliti yfir einkunnir frá Nemendaskrá og ferilskrá (CV). Hvort tveggja á að vera á ensku. Umsóknareyðublað

Frekari upplýsingar um námskeiðið má finna á heimasíðu Nordic Center við Fudan háskóla og í bæklingi um sumarnámskeiðið.

Nordic Centre stendur einnig fyrir öðrum námskeiðum sem Alþjóðaskrifstofa hefur ekki milligöngu um, heldur er sótt um beint til Nordic Centre.

Sumarnám á Indlandi

Nordic Centre in India stendur fyrir sumarnámi á Indlandi. Námskeiðið veitir ECTS-einingar og fæst metið inn í nám við HÍ ef forsvarsmaður deildar samþykkir námsáætlun. Þátttökugjald er 60.000 - 65.000 INR (um 150.000 ISK í janúar 2012) og er þar innifalið námskeiðgjald, húsnæði og matur. Þrjú námskeið eru í boði:

Frekari upplýsingar um námskeiðin, húsnæði ofl. má finna á heimasíðu Nordic Centre í Indlandi

Umsóknareyðublöðum á að skila til Alþjóðaskrifstofu HÍ, Háskólatorgi, ásamt ferilskrá, einkunnum, staðfestingu á skráningu við HÍ og bréfi (hámark 1 bls) þar sem tilgreindar eru ástæður fyrir þátttöku. Öll gögn skulu vera á ensku. Umsóknarfrestur er 22. mars.

Umsóknareyðublað

 

Sumarnám í Stokkhólmi

Háskólinn í Stokkhólmi í samvinnu við Karolinska Institutet og Tækniháskólann (KTH Royal Institute of Technology) býður upp á 5 fjögurra vikna sumarnámskeið á ensku fyrir nemendur í grunnnámi, frá og með 11. júní 2012. Eftirfarandi námskeið eru í boði:

•    Bioentrepreneurship
•    Future Energy Technology
•    Global Health
•    The Earth's Climate and Climate Change
•    The Swedish Model

Nemendur eiga möguleika á að ljúka 6 ECTS-einingum sem fást metnar inn í nám við HÍ ef forsvarsmaður deildar samþykkir námsáætlun.

Nánari upplýsingar um sumarskólann og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu skólans: http://www.stockholmsummerschool.se/

Umsóknarfrestur er til 1. mars 2012

Sumarnám í Viðskiptaháskólanum í Stokkhólmi

Stockholm University School of Business býður upp á 3 sumarnámskeið í grunnnámi sem henta nemendum í ýmsum fögum á tímabilinu 9. júlí – 17. ágúst 2012. Eftirfarandi námskeið eru í boði:

  • Corporate finance, 9.-27. júlí
  • Innovation, 30. júlí - 10 ágúst
  • Tourism and hospitality Marketing Management, 30. júlí - 17. ágúst

Nemendur eiga möguleika á að ljúka 7,5 - 15 ECTS-einingum sem fást metnar inn í nám við HÍ ef forsvarsmaður deildar samþykkir námsáætlun. Nemendur frá HÍ þurfa ekki að greiða námskeiðsgjöld. Umsóknareyðublöðum á að skila til Alþjóðaskrifstofu HÍ, Háskólatorgi og umsóknarfrestur er til 30. mars 2012.

Námskeiðslýsingar
Umsóknareyðublað

Sumarnám í Danmörku

  • Viðskiptaháskólinn í Kaupmannahöfn (Copenhagen Business School, CBS) býður upp á 35 sumarnámskeið í grunnnámi og 25 í framhaldsnámi dagana 25. júní - 3. ágúst 2012. Nemendur eiga möguleika á að ljúka 15 ECTS-einingum sem fást metnar inn í nám við HÍ ef forsvarsmaður deildar samþykkir námsáætlun. Nemendur frá HÍ þurfa ekki að greiða námskeiðsgjöld. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2012. Nánari upplýsingar, námskeiðslýsingar og umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu skólans.
  • Viðskiptaháskólinn í Árhúsum (Aarhus School of Business, ASB) býður upp á sumarnám fyrir grunn og meistaranámsnema. Möguleiki er að fá námið metið inn í námið við HÍ ef forsvarsmenn deilda samþykkja kennsluáætlun. Kennt er í lotum og nemendur ákveða sjálfir hvaða lotur þeir taka. Umsóknarfrestur er 15. mars 2012. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu ASB.
  • Tækniháskólinn í Danmörku (Danmarks Tekniske Universitet, DTU) býður upp á ýmis sumarnámskeið sumarið 2012. Nemendur eiga möguleika á að ljúka 5 ECTS-einingum sem fást metnar inn í nám við HÍ ef forsvarsmaður deildar samþykkir námsáætlun. Nemendur frá HÍ þurfa ekki að greiða námskeiðsgjöld. Umsóknarfrestir eru frá 31. mars – 1. maí 2012, breytilegir eftir námskeiðum. Nánari upplýsingar, námskeiðslýsingar og umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu skólans.


Háskólinn í Milano-Bicocca heldur sumarnámskeið fyrir meistaranema í líffræði, lífefnafræði, líftæknifræði og læknisfræði.

Stúdentum stendur til boða styrkur og námskeiðið fer fram dagana 7. maí - 31. júlí 2012. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans. Umsóknarfrestur er 3. febrúar 2012. Fyrirspurnir um námskeiðið skulu sendast á Alþjóðaskrifstofu Háskólans í Milano-Bicocca, intenational.office@unimib.it eða til Luisa Lorenzi, luisa.lorenzi@unimib.it


Háskólinn í Jyväskylä í Finnlandi heldur sumarnámskeið í Félags- og mannvísindum í maí-júní 2012.


Sumarnám í Öldrunarfræðum við Rostock University

Læknisfræðideildin við Rostock University bíður upp á 14 daga sumarnám í Öldrunarfræðum dagana 25. júní - 6. júlí 2012. Námskeiðið veitir ECTS-einingar og fæst metið inn í nám við HÍ ef forsvarsmaður deildar samþykkir námsáætlun. Umsóknarfrestur er 15. apríl 2012. Nemendur frá HÍ þurfa ekki að greiða námskeiðsgjöld. Skráning og nánari uppplýsingar á heimasíðu námskeiðsins.


Sumarnám við Wirtschaftsuniversität Wien

Um er að ræða tvö þriggja vikna námskeið í viðskiptafræði sem standa öllum opin en nemendur við HÍ fá afslátt af þátttökugjaldi. Námskeiðin eru haldin dagana 9.-26. júlí 2012 og 30. júlí -17. ágúst 2012. Umsóknarfrestur er 30. mars 2012. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans.


Alþjóðlegur sumarskóli Utrecht netsins

Utrecht netið skipuleggur á ári hverju sumarskóla sem nemendur við Háskóla Íslands geta sótt um. Námskeiðin veita ECTS-einingar og fást metin inn í nám við H.Í. ef forsvarsmaður fags samþykkir námsáætlun. Þátttakendur standa sjálfir straum af ferðakostnaði. Sumarskólarnir eru haldnir á eftirfarandi stöðum og tíma:

  • Seggau, Austurríki: „International Summer School on the Americas“, 15. - 29. júlí 2012. Námskeiðið er opið fyrir nemendur í grunn- og í framhaldsnámi. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Uni Graz. Umsóknarfrestur er 29. febrúar 2012.
  • Brno, Tékklandi: "Old Europe - New Europe", 9. - 21. júlí 2012.
  • Helsinki, Finnlandi: "Cultural Heritage, Chemistry and Spectroscopy", 7. - 28. ágúst 2012. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Sumarskólans í Helsinki. Umsóknarfrestur er 11. mars 2012.

Sumarnámskeið við Alexandru Ioan Cuza University í Rúmeníu  

Þessi samstarfsskóli Háskóla Íslands í gegnum Utrecht netið, býður nemendum HÍ að taka þátt í sumarnámskeiði við skólann 7. - 29. júlí 2011. Námskeiðið fjallar um Romania - Language and Civilization. Veittir verða fimm styrkir á námskeiðið fyrir samstarfsskóla rúmenska háskólans. Styrkurinn er rausnarlegur þ.e. fyrir námskeiðið sjálft, húsnæði og fæði. Sækja þarf um með því að hafa samband við Alþjóðaskrifstofu í síðasta lagi 19. maí. Sjá nánar um sumarskólann.

 

Lokaskýrsla vegna sumarnáms sumarið 2011

deila á facebook