Styrkir til námsdvalar í University of Minnesota og University of Iowa

Styrkur til háskólanáms við Minnesotaháskóla

Samkvæmt samningi milli Háskóla Íslands og Minnesotaháskóla (University of Minnesota) í Minneapolis, verður veittur styrkur til nema úr HÍ til þess að stunda nám við Minnesotaháskóla næsta skólaár (2012-2013). Styrkurinn nemur skólagjöldum og dvalarkostnaði. Umsækjendur skulu hafa stundað nám við Háskóla Íslands og ganga þeir fyrir sem eru í framhaldsnámi við HÍ og hyggjast taka eitt ár erlendis sem skiptistúdentar. Stúdentar útskrifaðir frá Háskóla Íslands sem hyggja á framhaldsnám við Minnesotaháskóla koma einnig til greina, en þurfa þeir þá að sækja um framhaldsnám við Minnesotaháskólann sérstaklega. Aðeins fyrir framhaldsnema eða þá sem ætla að sækja um framhaldsnám í Minnesota.

Skilyrði fyrir veitingu styrks er að umsækjandi sé íslenskur ríkisborgari.

Umsóknum skal skilað til Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands, Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, 101 Reykjavík fyrir 21.  nóvember 2011. Umsókn eiga að fylgja gögn sem geta gagnast við mat á umsækjanda, svo sem ferilskrá, ritaskrá og vottorð frá nemendaskrá sem sýnir hvar í prófaröð viðkomandi var. Umsækjendur fá svar við umsókn sinni í janúar 2012.

Umsókn um skiptinám í Minnesotaháskóla (.doc, 60 KB)

Umsókn um styrk í fullt nám í Minnesotaháskóla (.doc, 38,5 KB)

 

Styrkur til háskólanáms við Háskólann í Iowa

Samkvæmt samningi milli Háskóla Íslands og Iowa háskóla (University of Iowa) í Bandaríkjunum, er veittur styrkur til nemanda við HÍ til þess að stunda hluta af námi sínu við Iowa háskóla og fá nám sitt þar metið til eininga við Háskóla Íslands. Um er að ræða nám á grunnstigi (undergraduate). Styrkurinn nemur niðurfellingu skólagjalda og um 700 $ styrk. Aðeins fyrir grunnnema.

Umsóknum fyrir skólaárið 2012-2013 skal skilað Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands, Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, 101 Reykjavík fyrir 16. janúar 2012.

Umsókn um skiptinám í Iowa háskóla (.doc, 60 KB)

deila á facebook