Stúdentaráð er málsvari allra nemenda við HÍ. Stúdentaráð fer með þau mál er varða hagsmuni nemenda gagnvart háskólayfirvöldum, stjórnvöldum og öðrum þeim sem áhrif hafa á stefnu Háskólans. Ráðið hefur aðstöðu á 3. hæð Háskólatorgs, fyrir ofan Bóksöluna.
Stúdentaráð var stofnað árið 1920 og hefur alla tíð barist fyrir hagsmunum stúdenta og margvíslegum framförum í háskólasamfélaginu. Hlutverk Stúdentaráðs er margþætt. Það er m.a. hagsmunafélag stúdenta og lætur ekkert mál er varðar stúdenta óhreyft. Er einnig rödd stúdenta, inn á við sem og út á við og vinnur að ýmsum málum innan skólans. Stúdentaráð stendur að Stúdentablaðinu, heldur utan um félagslífið og sinnir hagsmuna-, jafnréttis- og réttindamálum innan Háskólans. Hægt er að kynna sér starfsemi Stúdentaráðs og það sem er á dagskrá.
Réttindabarátta
Á skrifstofu Stúdentaráðs er starfrækt Réttindaskrifstofa stúdenta sem rekur erindi fyrir þá stúdenta sem telja sig órétti beitta innan háskólasamfélagsins. Hagsmunagæsla lýtur meðal annars að einkunnaskilum, námsmati og einkunnagjöf.
Stúdentablaðið
Stúdentaráð er útgefandi Stúdentablaðsins sem kemur út reglulega yfir skólaárið. Stúdentablaðið er metnaðarfullur frétta-, skemmti- og upplýsingamiðill sem dreift er til allra stúdenta Háskóla Íslands. Stúdentablaðið er opinn miðill og á hverju ári er lýst eftir hæfileikaríkum nemendum til þess að gera blaðið sem veglegast. Ritstjóri Stúdentablaðsins er ráðinn til eins skólaárs í senn. Hægt að lesa um Stúdentablaðið á www.student.is.
Stúdentakort
Stúdentakort eru kort sem allir stúdentar ættu að ná sér í um leið og þeir skrá sig í Háskólann. Kortið er auðkennis- og afsláttarkort háskólanema og eru alltaf ný og spennandi tilboð að berast inn. Hægt er að lesa nánar um stúdentakortin.

