Starfseiningar

Alþjóðaskrifstofa annast m.a. stúdentaskiptasamninga Háskóla Íslands og tekur við umsóknum frá erlendum og innlendum skiptistúdentum.

Kennslumiðstöð veitir kennurum Háskóla Íslands faglega aðstoð við þróun kennsluhátta, heldur símenntunarnámskeið fyrir kennara og veitir ýmsa tæknilega þjónustu og ráðgjöf varðandi fjarnám.

Matsskrifstofa annast samhæfingu verkefna sem tengjast umsóknum um nám við HÍ og mati á þeim, einkum erlendum umsóknum í grunnnám og framhaldsnám, auk umsókna um undanþágu frá formlegum inntökuskilyrðum í grunnnám. Auk þess gegnir skrifstofan hlutverki ENIC/NARIC upplýsingaskrifstofu um mat og viðurkenningu náms, samkvæmt samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Náms- og starfsráðgjöf veitir nemendum háskólans m.a. ráðgjöf um námsval og vinnubrögð og leggur til úrræði vegna fötlunar og sérþarfa.

Nemendaskrá annast skrásetningu allra nemenda Háskólans og varðveitir gögn um námsframvindu þeirra, skráningu í námskeið, próf og einkunnir.

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir nemendum þjónustu af ýmsu tagi. Þar má m.a. fá ýmis vottorð og yfirlit yfir námsferla, skila veikindavottorðum, kaupa prentkvóta, skrá sig í námskeið Náms- og starfsráðgjafar, fá lykilorð vegna Uglu og nálgast stúdenta- og strætókort.

deila á facebook