Háskóli Íslands hefur sett sér það metnaðarfulla langtímamarkmið að komast í hóp fremstu háskóla á alþjóðavísu. Mikilvægur áfangi að þessu marki er Stefna Háskóla Íslands 2006-2011 þar sem m.a. er lögð áhersla á eflingu hágæðarannsókna og framhaldsnáms.
Í kjölfar þessarar stefnumörkunar var í ársbyrjun 2007 undirritaður samningur á milli menntamálaráðuneytisins og Háskóla Íslands um viðbótarfjárframlag og tekur hann mið af stefnu Háskólans og stefnu Vísinda- og tækniráðs. Í 29. gr. samningsins segir m.a. að Háskólinn skuli skilgreina áherslusvið í rannsóknum og kennslu.
Til að efna þetta samningsmarkmið hefur Háskólinn ákveðið að verja hluta viðbótarfjárins til að styrkja sérstaklega öfluga rannsóknahópa sem hafa burði til að skara fram úr á alþjóðlegum vettvangi. Stuðningur af þessu tagi er alþekktur í hinu alþjóðlega vísindasamfélagi.
Öflugir rannsóknahópar eru kjörinn vettvangur frjós samstarfs reyndra og alþjóðlega viðurkenndra vísindamanna, ungra og efnilegra fræðimanna og framúrskarandi nýdoktora, doktorsnema og meistaranema. Jafnframt skapa slíkir hópar tækifæri til að byggja brýr á milli fræðasviða og nýta þannig enn betur þá fræðilegu fjölbreytni og þann mikla mannauð sem eru aðalsmerki Háskóla Íslands.
Einnig eru slíkir hópar eftirsóknaverðir samstarfsaðilar fyrir innlenda og erlenda háskóla, vísindastofnanir og þekkingarfyrirtæki og styrkja þannig um leið íslenskt vísindasamfélag og atvinnulíf. Með þessu framtaki leggur Háskóli Íslands því fram mikilsverðan skerf til eflingar alþjóðlegrar samkeppnishæfni skólans og íslensks þekkingarsamfélags.
Úthlutun styrkjanna miðast ekki við fyrirfram skilgreind fagsvið heldur verða umsóknirnar metnar út frá faglegum gæðum þeirra.
Styrkir
Vorið 2008 verða auglýstir 4-6 styrkir til öflugra rannsóknahópa við Háskóla Íslands. Styrkirnir eru til þriggja ára og er árleg fjárhæð hvers styrks að hámarki 30 m.kr.
Forval
Valferlinu er skipt í tvo hluta, forval og lokaval. Forval hefst með birtingu auglýsingar vorið 2008. Í forvalshlutanum gefst umsækjendum kostur á að leggja fram forumsókn sem skal vera á ensku og allt að 5 bls. að lengd. Að hverri umsókn skal standa hópur fræðimanna og framhaldsnema og fyrir honum skal fara aðalumsækjandi, einn eða fleiri ef um þverfræðilegt samstarfsverkefni er að ræða. Aðalumsækjandi skal vera akademískur starfsmaður Háskóla Íslands. Frestur til að skila forumsóknum er til 15. september 2008. Í forumsókn skal eftirfarandi koma fram:
* Tengsl verkefnis við Stefnu Háskóla Íslands 2006-2011 með tilliti til eflingar rannsókna, aukinna alþjóðlegra tengsla, uppbyggingar doktorsnáms og þverfræðileika.
* Markmið verkefnis.
* Vísindalegt gildi verkefnisins í alþjóðlegu samhengi.
* Yfirlit um innlenda og erlenda samstarfsaðila og þátt þeirra í verkefninu.
* Framkvæmda- og tímaáætlun.
* Fjárhagsáætlun, þ.m.t. áætlaður kostnaður, aðrir styrkir og mótframlög samstarfsaðila.
* Aðstaða til að framkvæma verkefnið.
* Framlag verkefnisins til eflingar kennslu innan Háskóla Íslands.
* Áætlaðar afurðir verkefnisins, svo sem birtingar, brautskráðir doktorar og meistarar, áform um frekari rannsóknir og samstarf, samfélagsleg áhrif o.fl.
* Kynningaráætlun.
Matsforsendur
Forumsóknir verða metnar á grundvelli eftirtalinna sjónarmiða (ekki er um að ræða forgangsröðun):
* Tengsla verkefnis við Stefnu Háskóla Íslands 2006-2011.
* Vísindalegs gildis og nýsköpunar þekkingar.
* Virkni og árangurs aðalumsækjenda í rannsóknum.
* Framlags verkefnis til styrkingar á stöðu Háskóla Íslands á alþjóðlega vísu á viðkomandi rannsóknasviði eða rannsóknasviðum.
* Þjálfunargildis verkefnis fyrir ungt vísindafólk (nýdoktora, doktors- og meistaranema).
* Tengingar við nám og kennslu á framhaldsstigi.
* Samstarfsaðila og framlags þeirra.
* Raunhæfni áætlana, þ.m.t. líkinda á því að markmiðum verði náð.
Rita- og ferilskrá aðalumsækjanda (eða aðalumsækjenda) skal fylgja forumsókn.
Valnefnd
Rektor skipar valnefnd með þremur alþjóðlega viðurkenndum fræðimönnum. Valnefnd metur allar umsóknir og getur hún leitað umsagna með aðstoð vísindasviðs. Valnefnd tilnefnir allt að tíu umsóknir sem taka þátt í lokavali. Valnefnd tilkynnir um niðurstöðu sína fyrir 1. nóvember 2008 og er hún endanleg.
Lokaval
Umsækjendur í lokavali fá frest til 15. desember 2008 til að vinna ítarlegri umsókn skv. nánari kröfulýsingu. Hver umsókn fær allt að 500.000 kr. styrk til að greiða kostnað við gerð lokaumsóknar (til greiðslu reikninga vegna ferðakostnaðar, yfirlestur o.s.frv.). Lokaumsóknir eru metnar á sömu forsendum og forumsóknir. Valnefndin fer yfir umsóknirnar og fá forsvarsmenn þeirra tækifæri til að gera munnlega grein fyrir þeim. Valnefndin tilkynnir um niðurstöðu sína fyrir 1. febrúar 2009. Gerður verður skriflegur samningur við styrkþega og skulu þeir skila árlegri framvinduskýrslu.
Styrkþættir
Styrkir til öflugra rannsóknahópa geta staðið straum af kostnaði við:
* Laun sérfræðinga, aðstoðarmanna, tæknimanna, nýdoktora og doktors- eða meistaranema,
* aðkeypta þjónustu,
* ferðir,
* tæki og búnað,
* efni.
Upplýsingar og skil
Vísindasvið Háskóla Íslands annast umsýslu með styrkjunum. Umsóknir skulu merktar „Stuðningur við öfluga rannsóknahópa" og þeim skilað á rafrænu formi á netfangið mimi@hi.is. Fyrirspurnum svarar Halldór Jónsson, sviðsstjóri vísindasviðs (dorij@hi.is).

