Starf sérfræðings við stærðfræðistofu er laust til umsóknar. Sérfærðingnum er ætlað að stunda rannsóknir á sviði stærðfræði eða stærðfræðilegrar eðlisfræði.
Ráðið verður í starfið tímabundið til tveggja ára með möguleika á framlengingu um eitt ár. Starfið veitir sérfræðingi snemma á ferli sínum tækifæri til að helga sig rannsóknum á ráðningartímanum. Jafnframt styrkir sérfræðingurinn rannsóknir og aðra starfsemi stofunnar og tryggir flæði ferskra hugmynda. Ekki verður mælt með ótímabundinni ráðningu að loknum ráðningartíma.
Eftirfarandi skilyrði verða höfð til hliðsjónar við veitingu starfsins:
Umsækjandi skal hafa lokið doktorsprófi í stærðfræði eða stærðfræðilegri eðlisfræði þegar hann tekur við starfinu. Æskilegt er að ekki hafi liðið lengri tími en fimm ár frá því umsækjandi lauk doktorsprófi þegar hann tekur við starfinu. Umsóknir sem falla vel að áherslusviðum stofunnar í rannsóknum njóta að öðru jöfnu forgangs. (Sjá http://www.raunvis.hi.is/Staerdfr/Staerdfr.html).
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsóknir skulu berast á rafrænu formi á netfangið bmz@hi.is. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og vottorð um námsferil sinn og störf. Umsókn og umsóknargögnum sem er ekki skilað rafrænt skal skila í tvíriti til vísindasviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 6, 101 Reykjavík. Einnig er nauðsynlegt að í umsókn komi fram hvaða verkefnum umsækjendur hafa unnið að, hverju þeir vinna að núna og ítarleg lýsing á fyrirhuguðum rannsóknum þeirra ef af ráðningu yrði. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Æskilegt er að umsagnir um menntun og vísindaleg störf umsækjanda berist frá 2-3 dómbærum mönnum á vísindasviði umsækjanda.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra og um röðun sérfræðings í launaflokk fer eftir 2. kafla í stofnanasamningi Raunvísindastofnunar Háskólans við Félag háskólakennara.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2010.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfum starfsins þegar ákvörðun liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður stærðfræðistofu Jón Ingólfur Magnússon, prófessor, jim@raunvis.hi.is.
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands og stofnunum hans er tekið mið af jafnréttisáætlun Háskólans.

