Starf sérfræðings við reiknifræðistofu er laust til umsóknar.
Sérfræðingnum er ætlað að stunda rannsóknir á sviði tölfræði og starfa í samvinnu við Tölfræðimiðstöð Háskóla Íslands. Umsækjandi mun einnig sinna einhverri kennslu en umfang og greiðslur verða samkvæmt nánara samkomulagi.
Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi á sviði tölfræði eða skyldum greinum þegar hann hefur störf.
„Ráðið verður í starfið tímabundið til þriggja ára. Starfið veitir sérfræðingi snemma á ferli sínum tækifæri til að helga sig rannsóknum í þrjú ár. Jafnframt styrkir sérfræðingurinn rannsóknir og aðra starfsemi stofunnar, tryggir flæði ferskra hugmynda og tryggir að nauðsynleg þekking í tölfræði sé fyrir hendi. Ekki verður mælt með ótímabundinni ráðningu eftir þetta þriggja ára tímabil.“
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsóknir skulu berast á rafrænu formi á netfangið bmz@hi.is. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og greinargerð um áform ef til ráðningar kemur. Nauðsynlegt er að í umsóknum komi fram hvaða verkefnum umsækjendur hafa unnið að, hverju þeir vinna að núna og ítarleg lýsing á fyrirhuguðum rannsóknum þeirra ef af ráðningu verður. Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með tvær til þrjár umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín eftir því sem við á. Umsókn og umsóknargögnum sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti til vísindasviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 6, 101 Reykjavík. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2010.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Stefánsson, prófessor í síma 525 5915, netfang gunnar@hi.is.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

