Sérfræðingur - Reiknifræðistofa Raunvísindastofnunar

Starf sérfræðings við reiknifræðistofu er laust til umsóknar.

Sérfræðingnum er ætlað að stunda rannsóknir á sviði reiknifræði, en reiknifræði fæst við gerð stærðfræðilegra líkana og reiknirita til að greina og leysa verkefni á sviði verkfræði og vísinda með aðstoð tölva.  Innan þessa sviðs eru aðferðir sem stundum eru
flokkaðar innan aðgerðagreiningar, tölfræði, hagnýtrar líkindafræði og tölvunarfræði.

Ráðið verður í starfið til tveggja ára frá vori 2009, eða samkvæmt samkomulagi, með möguleika á framlengingu um eitt ár.

Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið doktorsprófi og að ekki hafi liðið lengri tími en fimm ár frá því að umsækjandi lauk því.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um háskóla nr. 63/2006, laga um opinbera háskóla nr.85/2005 og reglna um Háskóla Íslands nr. 458/2000.

Umsóknarfrestur er til 1. mars 2009 .

Umsóknir skulu berast á rafrænu formi á netfangið  bmz@hi.is .Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og greinargerð um áform ef til ráðningar kemur.  Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um rannsóknir, kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á.  Lýsa skal fyrirhuguðum rannsóknum í umsókn.   Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.  

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Stefánsson, prófessor (gunnar@hi.is).

Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands og stofnanir hans er tekið mið af jafnréttisáætlun Háskólans.

deila á facebook