Samstarfsnefnd háskólastigsins hefur starfað frá árinu 1990 og starfar nú skv. 26. gr. laga um háskóla nr. 63/2006.
Í nefndinni eru rektorar háskóla sem hafa fengið viðurkenningu menntamálaráðuneytis. Nefndin kemur reglulega saman og fjallar um ýmis málefni er varða starfsemi og hagsmuni háskólanna og veitir umsagnir um mál sem menntamálaráðherra eða einstakir háskólar vísa til hennar. Enn fremur tilnefnir samstarfsnefndin fulltrúa í ýmsar nefndir og ráð.
Samstarfsnefnd háskólastigsins er þannig vettvangur samráðs og samstarfs háskólanna um sameiginleg málefni þeirra, s.s. um gæðamál, gagnkvæma viðurkenningu náms, bókasafnsmál, inntökuskilyrði í háskóla o.fl. Nefndin er aðili að Samtökum norrænna háskóla (NUS) og Samtökum evrópskra háskóla (EUA).
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands er formaður samstarfsnefndar háskólastigsins og Þórður Kristinsson, sviðsstjóri kennslusviðs HÍ er ritari hennar.
Starfsreglur samstarfsnefndar háskólastigsins
|
Formaður |
------ Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólanum í Reykjavík |
|
Stefán B. Sigurðsson, rektor |
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor |
|
Ágúst Sigurðsson, rektor |
Skúli Skúlason, rektor |
|
Bryndís Hlöðversdóttir, rektor |
Ritari nefndarinnar er |

