Samstarf

Háskóli Íslands hefur alla tíð verið í margvíslegu samstarfi innan lands sem utan. Innan lands er öflugt samstarf við atvinnulífið og vinna fjölmörg fyrirtæki og stofnanir með Háskólanum.

Rannsóknarþjónusta Háskólans hefur það hlutverk að styrkja tengsl Háskóla Íslands og atvinnulífsins á sviðum rannsókna, nýsköpunar og hæfnisuppbyggingar. Samstarf Háskólans annars vegar og fyrirtækja og opinberra aðila hins vegar skilar starfsmönnum og nemendum skólans miklu.

Öflug samvinna er atvinnulífinu ekki síður mikilvæg en skólanum þar sem Háskólinn hefur verið driffjöður íslensks atvinnulífs og gegnir enn lykilhlutverki í því að gera Ísland samkeppnishæft á alþjóðavettvangi.

Öflugt alþjóðlegt samstarf

Háskóli Íslands starfar í alþjóðlegu umhverfi og á samstarf við mörg hundruð erlenda háskóla og rannsóknastofnanir um rannsóknir, nemendaskipti, starfsmannaskipti og fleira. Öllum nemendum gefst kostur á að taka hluta af námi sínu við erlenda háskóla og hundruð erlendra nema stunda nám við skólann ár hvert.

Við skólann starfar fjöldi erlendra gestakennara og vísindamanna. Háskólinn leggur mikla áherslu á alþjóðleg samskipi í öllu starfi sínu og vinnur stöðugt að því að styrkja þau og efla.

deila á facebook