Starfsemi Háskóla Íslands fer fram í mörgum byggingum sem eru á nokkrum svæðum. Félagsvísindasvið, heilbrigðisvísindasvið, hugvísindasvið og verkfræði- og náttúruvísindasvið eru í Vatnsmýrinni og í Vesturbæ, en menntavísindasvið er að stærstum hluta á Rauðarárholti, utan náms í íþrótta- og tómstundafræði sem fer fram á Laugarvatni.
Húsnæði Háskóla Íslands í Reykjavík er afar vel staðsett og auðvelt að komast þangað. Svæðin í Vatnsmýri, Vesturbæ og á Rauðarárholti eru stutt frá stórum samgönguæðum og liggja vel við almenningssamgöngum. Einnig er auðvelt að komast bæði gangandi og hjólandi og nýtist hjólreiðastígurinn sem nær alla leið frá Elliðaárdal og út á Seltjarnarnes þeim vel sem vilja komast í Vatnsmýrina eða Vesturbæinn.

