Sameiginleg stjórnsýsla gætir heildarhagsmuna Háskólans, annast sameiginleg málefni hans og samskipti við stjórnvöld í umboði rektors. Sameiginlegri stjórnsýslu er skipt svo:
Fjármál og rekstur: Framkvæmdastjóri fjármála og reksturs er Guðmundur R. Jónsson, grj@hi.is. Eftirfarandi svið heyra undir fjármál og rekstur:
- Fjármálasvið - helstu verkefni eru fjárreiður, fjárhagsáætlanir, reikningshald, launavinnsla, innkaup, styrktarsjóðir.
- Framkvæmda- og tæknisvið - helstu verkefni eru nýbyggingar, breytingar og viðhald bygginga, umsjón með lóðum, húsbúnaðarkaup og viðhald, öryggismál, umsjón með byggingum og ræstingu, leigusamningar og tryggingar.
- Markaðs- og samskiptasvið - helstu verkefni eru kynningarefni, háskólavefur, fjölmiðlatengsl, skipulagning viðburða, styrktarsjóðir, tengsl við atvinnulíf og hollvinasamtök.
- Starfsmannasvið - helstu verkefni eru framkvæmd starfsmannastefnu, kjaramál, starfsauglýsingar og ráðningarmál, ráðgjöf við stjórnendur, réttindi og skyldur starfsmanna, starfsfræðsla, -þjálfun og -þróun og gerð verklagsreglna.
Vísindi og kennsla: Aðstoðarrektor vísinda og kennslu er Jón Atli Benediktsson, benedikt@hi.is. Eftirtalin svið heyra undir vísindi og kennslu:
- Kennslusvið - helstu verkefni eru málefni kennslu, kennsluskrá, prófaumsýsla, nemendaskrá, námsráðgjöf, jafnréttismál, kennslumiðstöð, alþjóðaskrifstofa, mat á námi, lög og reglur.
- Vísindasvið - helstu verkefni eru málefni vísinda og rannsókna, rannsóknatengdir sjóðir, mat á rannsóknum, málefni dómnefnda, grunnmat, nýráðningar og framgangsmál, framtal starfa, rannsóknamisseri, ritaskrá.
Til sameiginlegrar stjórnsýslu teljast einnig Miðstöð framhaldsnáms, Innri endurskoðun, auk þjónustustofnana og annarra þjónustueininga Háskólans.

