Háskóli Íslands er leiðandi í rannsóknum á Íslandi. Á öllum fimm fræðasviðum eru stundaðar rannsóknir á heimsmælikvarða og nýjar uppgötvanir gerðar á degi hverjum sem leiða af sér nýja þekkingu sem bætir hag Íslendinga og eykur lífsgæði. Rannsóknastofnanir við skólann skipta tugum og fremstu vísindamenn þjóðarinnar stunda rannsóknir við Háskólann. Öflug rannsóknarvirkni skilar sér í betra námi, fyrir nemendur í grunn- og framhaldsnámi, þar sem nemendur læra ekki einungis að afla sér þekkingar heldur læra einnig að viðhalda henni og uppgötva nýja þætti sem skila sér inn í framtíðina.
Metnaðarfullt markmið
Háskólinn hefur sett sér metnaðarfullt markmið um að komast í fremstu röð háskóla í heiminum og einn mikilvægasti þátturinn í þeirri vegferð er að efla hágæðarannsóknir sem standast alþjóðleg viðmið á fjölbreyttum sviðum vísinda og fræða. Stefnan var sett árið 2006 og hefur doktorsnemum fjölgað verulega og birtingum á ritrýndum greinum sömuleiðis.
Frábær aðstaða til rannsókna
Fjölmargir styrkir eru í boði fyrir kennara og framhaldsnema sem stunda rannsóknir. Aðstaða til rannsókna er mjög góð við Háskóla Íslands og stefnt er að því að bæta hana stöðugt á næstu árum. Meðal þess sem stendur til er bygging Vísindagarða í Vatnsmýri, þar sem verkfræðideildir munu m.a. hafa aðstöðu til rannsókna, nýtt hátæknisjúkrahús, þar sem rannsóknir í heilbrigðisvísindum munu blómstra og nýtt húsnæði fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.


