Rannsóknamaður, nýdoktor við rannsóknasetur í kerfislíffræði - 200911/034

Við Rannsóknasetur í kerfislíffærði er laust til umsóknar starf í efnagreiningum með áherslu á efnagreiningar tengdum efnaskiptaferlum mannafruma.

Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi í efnagreiningu eða skyldum greinum og þekkingu á massagreinum. Nýdoktornum/rannsóknamanninum er  ætlað að taka þátt í uppbyggingu á rannsóknum í kerfislíffræði við Háskóla Íslands.  Krafis er góðrar samstarfshæfni og lipurðar í mannlegum samskiptum.  Mjög góð enskukunnátta er skilyrði svo og hæfni til að vinna í þverfaglegum hópum. Rannsóknasetur í kerfislíffræði er þverfræðilegt setur tengt Verkfræði og náttúrvísindasviði og Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands.

Rannsóknir við kerfislíffræðisetur Hásóla Íslands beinast að efnaskiptaferlum mannafruma.  Nýdoktornum/sérfræðingnum er ætlað að þróa mæliaðferðir á niðurbrotsefnum með massagreinum.  Markmiðið era ð geta mælt nákvæmlega 100-200 niðurbrotsefni í lífsýnum (æti, serum).  Nýdoktornum er ætlað að vinna í nánu samstarfi við alþjóðlega samstarfsaðila og í þverfaglegu teymi sérfræðinga á kerfislíffræðisetri.  

Stefnt er að ráða í starfið sem fyrst.  Nánari upplýsingar veitir Ines Thiele, lektor og skal senda umsóknir og umsóknargögn á netfangið  systemsbiology@hi.is. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar niðurstaða liggur fyrir.

Laun taka mið af kjarasamningum fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.  

Umsóknarfrestur er til 7. desember 2009.

Nánari upplýsingar eru á vef Kerfislíffærðisetursins http://systemsbiology.hi.is/.

Við ráðningar í störf við Háskólann er tekið mið af jafnréttisáætlum skólans.

deila á facebook