Frestur til að sækja um grunnnám við HÍ háskólaárið 2009-2010 rann út 5. júní
Nemendaskrá heldur skrá yfir nemendur Háskólans, nám þeirra og námsferil.
Rafræn skráning í námskeið og próf
Nemendur geta í gegnum Uglu, sem er innri vefur Háskólans, skráð sig bæði í og úr námskeiðum og sjúkra- og upptökuprófum á ákveðnum tímabilum. Upplýsingar um þessi skráningartímabil er að finna í kennslualmanaki HÍ.
Nemendur geta jafnframt fylgst með námsferli sínum í gegnum Uglu.
Nánar um verkefni Nemendaskrár og þjónustu sem þar er veitt:
- Nemendaskrá hefur umsjón með innritun og skrásetningu nemenda til náms og í námskeið við allar deildir Háskólans.
- Nemendaskrá skráir og varðveitir gögn um námsferla nemenda, námsframvindu þeirra, námskeið, próf og einkunnir.
- Innheimta skrásetningargjalds er í höndum Nemendaskrár.
- Nemendaskrá tekur við beiðnum um skráningu í og úr námskeiðum og prófum með tölvupósti, í þeim tilvikum þegar nemendur geta ekki skráð sig sjálfir í gegnum Uglu.
- Á Þjónustuborði á Háskólatorgi geta nemendur fengið vottorð um skólavist, námsferilsyfirlit og pantað staðfest afrit af brautskráningarskírteinum og fylgiskjölum. Afgreiðsla afrita af brautskráningarskírteinum er lágmark einn sólarhringur. Almenn vottorð t.d. vegna húsaleigabóta, fæðingarorlofs, orlofs, sjúkradagpeninga, atvinnuleysisbóta og fleira kosta kr. 300. Námsferilsyfirlit og staðfest afrit af brautskráningarskírteinum kosta einnig kr. 300.-
- Útprent af námskeiðslýsingum er einnig hægt að nálgast á Þjónustuborði á Háskólatorgi og kosta allt að kr. 1.500
- Þjónustuborð og Nemendaskrá taka við læknisvottorðum vegna veikinda í prófum.
- Nemendaskrá annast undirbúning brautskráningar kandídata, í samvinnu við deildir og rektorsskrifstofu.
Nemendaskrá er á Háskólatorgi, 3. hæð, s. 525 4309, fax 525 4317, netfang nemskra@hi.is. Afgreiðslutími er kl. 09:00-12:00 og 12:30-15:00 alla virka daga.
Afgreiðslutími Þjónustuborðs á Háskólatorgi er frá kl. 8:30-18:00 á veturna en til 16:30 á sumrin. Sími 525 5800, fax 525 5802 og netfang haskolatorg@hi.is.


