Mesta námsframboðið
- Í Háskóla Íslands er mesta úrval landsins af námsleiðum á öllum helstu fræðasviðum. Skólinn býður upp á grunnnám í um 165 námsleiðum og framhaldsnám í um 210 námsleiðum. Við Háskólann starfar stór hópur vel menntaðra kennara.
Alþjóðleg tengsl
- Öllum nemendum Háskólans gefst kostur á að taka hluta af námi sínu við erlenda háskóla. Á móti stunda hundruð erlendra nemenda stunda nám við HÍ á ári hverju og fer þeim stöðugt fjölgandi. Einnig starfar fjöldi erlendra gestakennara og vísindamanna við Háskólann.
Aðalgrein + aukagrein
- Val á námsgrein í Háskóla Íslands býður upp á marga skemmtilega möguleika. Hægt að velja sér eina aðalgrein til 120 ECTS-eininga og svo aukagrein til 60 ECTS-eininga. Full BA/BS-gráða er 180 ECTS-einingar. Nemendur geta þannig sameinað það besta af því áhugaverðasta í Háskólanum. Athugið að þetta á ekki við um allar námsleiðir.
Tvöföld BA/BS- gráða
- Hægt er að taka tvöfalda BA- eða BS- gráðu. Þá þarf að ljúka 120 ECTS-einingum í einni grein og 120 ECTS-einingum í annarri grein. Þetta getur til dæmis nýst þeim sem vilja styrkja atvinnumöguleika sína með tvöfaldri gráðu. Athugið að þetta á ekki við um allar námsleiðir.
Diplómanám
- Háskóli Íslands býður einnig diplómanám. Gráðan er 30-90 ECTS-einingar eða 1-3 misseri. Diplómanám getur nýst þeim sem ekki eru tilbúnir að hella sér út í fullt nám strax eða langar að skerpa á þekkingu sinni eða bæta við hana.
Fullt nám
- Fullt nám til fyrstu prófgráðu í Háskóla Íslands, BA/BS-gráða, er 180 ECTS-einingar (European Credit Transfer Accumulation System).
- Eðlileg námsframvinda í háskóla er talin vera um 30 ECTS á misseri. Nemendur geta þó sótt um leyfi til þess að taka fleiri eða færri einingar ef það hentar þeim betur.
Síða uppfærð / breytt 14. apríl 2011