Hundruð námsleiða
Háskóli Íslands leggur ríka áherslu á að veita fjölþætta og haldgóða menntun, í takti við þarfir þjóðfélags okkar tíma. Fjölbreytnin í námsvali innan skólans eykst því stöðugt.
Grunnnám
Í grunnnámi eru nú í boði um 165 námsleiðir sem lýkur með prófgráðu og innan þeirra eru 80 áherslulínur eða kjörsvið.
Framhaldsnám
Í framhaldsnáminu hefur gróskan verið gífurleg á síðustu árum og þar bjóðast nú um 210 mismunandi námsleiðir með um 120 áherslulínum. Hvert sem áhugasviðið er ættu því flestir námsmenn að finna eitthvað við sitt hæfi í Háskóla Íslands.
Nánari upplýsingar um námsframboðið
Þú finnur ítarlegar upplýsingar um námsframboð og námsleiðir í kennsluskrá Háskólans og á vefsíðum einstakra fræðasviða og deilda.

