Hér geturðu sótt ýmsar útfærslur af merki Háskólans á íslensku til notkunar í Macintosh eða PC tölvum. Merkið er vistað sem vektor annars vegar og bitmap hins vegar (fyrir almenna notendur), í litaskilgreiningunum CMYK, RGB, Pantone og svarthvítu.
|
|
|
|
|
|
|
|
Viðmið um notkun á merkjum Háskóla Íslands
Merki Háskóla Íslands eru tvö, annars vegar eiginlegt innsiglismerki og hins vegar auðkenni (lógó).
Eiginlegt innsiglismerki Háskóla Íslands (stimplað, þrykkt eða prentað á bréfsefni) er notað við formlega skjalagerð til staðfestingar á umboði þess sem skjalið ritar í nafni Háskólans eða stjórnunareiningar innan hans. Sérstakar reglur gilda um notkun innsiglismerkisins.
Auðkenni (lógó) Háskóla Íslands er notað við almenna kynningu á þeirri starfsemi sem fram fer á vegum skólans, þ.e. rannsóknir, kennsla og fræðsla/þjónusta.
Auðkennið mega nota:
- Allir fastráðnir starfsmenn H.Í. þegar þeir koma fram eða senda frá sér skjöl eða gögn á vegum þeirrar stjórnunareiningar sem þeir starfa í. Ennfremur þeir sem hlotið hafa akademíska nafnbót skv.skv.skv. reglum þar að lútandi.
- Allar háskóladeildir og stofnanir sem heyra undir deildir.
- Allar stofnanir sem heyra undir háskólaráð.
- Sameiginleg stjórnsýsla H.Í.
Heimilt er einnig að nota auðkennið, ásamt auðkennum annarra aðila, ef fyrir hendi er samstarfssamningur um tiltekin verkefni, sbr. t.d. samning H.Í. og Landspítala - háskólasjúkrahúss. Einnig ef um er að ræða sameiginleg verkefni, svo sem ráðstefnur og málþing.
Þjónustusamningar og samningar um styrki við einstök verkefni veita ekki heimild til þess að nota auðkenni Háskólans, nema sérstaklega sé um það samið.

