Lög og reglur

Lög um opinbera háskóla, nr. 85/2008, voru samþykkt á Alþingi 30. maí 2008 (breytt 1. júní 2010 með lögum nr. 50/2010 um breytingu á lögum nr. 85/2008). Við gildistöku laganna féllu úr gildi lög nr. 41/1999, um Háskóla Íslands. Lög um sameiningu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands, nr. 37/2007, tóku gildi 1. júlí 2008 og féllu þá úr gildi lög nr. 137/1997 um Kennaraháskóla Íslands.

Reglur sem háskólaráð setur eru nánari útfærsla á lögum sem um Háskólann gilda.

Reglur sem háskólaráð hefur sett á grundvelli eldri laga halda gildi sínu, að svo miklu leyti sem þær eru samrýmanlegar ákvæðum laga nr. 85/2008, þar til háskólaráð hefur sett nýjar reglur. Af þessu leiðir að ef um er að ræða mun á ákvæðum í (eldri) reglum og ákvæðum í nýjum lögum, þá gilda hin nýju lög.

Sameiginlegar reglur Háskóla Íslands

Verklagsreglur

Siðareglur

Yfirlit um reglur Háskóla Íslands

Nýjar og breyttar reglur

Reglur nr. 96/2012 um breytingu á reglum nr. 844/2001 um Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands, samþ. á fundi háskólaráðs 12. janúar 2012.

Reglur nr. 95/2012 um breytingu á reglum nr. 643/2011 um meistaranám við félagsvísindasvið Háskóla Íslands, samþ. á fundi háskólaráðs 12. janúar 2012.

Reglur nr. 94/2012 um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands, samþ. á fundi háskólaráðs 12. janúar 2012.

Starfsreglur nefnda til að undirbúa ákvörðun háskólarektors um ráðningu forseta fræðasviða HÍ (.pdf). Tóku gildi 08.07.2008, síðast breytt með samþykkt háskólaráðs 2. febrúar 2012.

Reglur nr. 1308/2011 um breytingu á reglum um val stúdenta til náms í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands, nr. 502/2002, með síðari breytingum, samþ. á fundi háskólaráðs 8. desember 2011.

Reglur nr. 1307/2011 um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands, samþ. á fundi háskólaráðs 8. desember 2011.

Reglur nr. 1306/2011 um breytingu á reglum nr. 1055/2006 um alþjóðlegt meistaranám í auðlindarétti og alþjóðlegum umhverfisrétti, samþ. á fundi háskólaráðs 8. desember 2011.

Reglur nr. 1305/2011 um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands, samþ. á fundi háskólaráðs 8. desember 2011.

Reglur um doktorsnám og doktorspróf við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, nr. 1252/2011, samþ. á fundi háskólaráðs 8. desember 2011.

Reglur um Lífvísindasetur Háskóla Íslands, nr. 1145/2011, samþ. á fundi háskólaráðs 17. nóvember 2011.

Reglur nr. 1144/2011 um breytingu á reglum nr. 984/2008 um skipan og fundarsköp háskólaþings Háskóla Íslands, samþ. á fundi háskólaráðs 17. nóvember 2011.

Reglur nr. 1143/2011 um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands, samþ. á fundi háskólaráðs 17. nóvember 2011.

Reglur nr. 1100/2011 um breytingu á reglum nr. 263/2010 um framgang og ótímabundna ráðningu akademískra starfsmanna við Háskóla Íslands, samþ. á fundi háskólaráðs 17. nóvember 2011.

Reglur nr. 832/2011 um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Um er að ræða breytingu á 3. mgr. 56. gr. (um sjúkrapróf) og 2. mgr. 57. gr. (um sérstök endurtökupróf). Breytingarnar voru samþykktar á fundi háskólaráðs 8. september 2011.

deila á facebook