Kennslusvið fer með sameiginleg málefni sem varða kennslu og nám, svo sem inntöku og skráningu stúdenta, mat á námi, kennslumál og próf. Ýmsir aðrir málaflokkar stjórnsýslunnar heyra einnig undir kennslusvið, svo sem jafnréttismál og lög og reglur, svo og samstarf við nefndir og ráð.
Skrifstofur kennslusviðs eru á 1. hæð Aðalbyggingar, norðurálmu, og á Háskólatorgi. Símar 525-4002 og 525-5833. Almennur þjónustutími er kl. 9-12 og 13-16. Sviðsstjóri er Þórður Kristinsson.
Eftirtaldar starfseiningar heyra undir kennslusvið:
Alþjóðaskrifstofa
Kennslumiðstöð
Matsskrifstofa
Náms- og starfsráðgjöf
Nemendaskrá
Þjónustuborð Háskólatorgi
ENIC/NARIC upplýsingaskrifstofa
Matsskrifstofa kennslusviðs annast daglega starfsemi ENIC/NARIC upplýsingaskrifstofu um mat og viðurkenningu náms, samkvæmt samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Samstarfsnefndir
Alþjóðaráð
Kennslumálanefnd
Jafnréttisnefnd
Ráð um málefni fatlaðra
Samstarfsnefnd háskólastigsins
Stefnunefnd HÍ og LSH

