Jafnréttisnefnd

Vefgátt jafnréttismála: jafnretti.hi.is

Starfssvið

Starfssvið jafnréttisnefndar nær til jafnréttismála í víðum skilningi, sbr. 65. grein stjórnarskrárinnar og ber henni að hafa gildandi lög um jafna stöðu kvenna og karla að leiðarljósi.

Hlutverk

Eitt af sex grunngildum í stefnu Háskóla Íslands 2006 - 2011 er að Háskóli Íslands leggi áherslu á lýðræðisleg vinnubrögð og að jafnréttis verði gætt á öllum sviðum starfseminnar. Jafnframt að Háskólinn ætli ávallt að vera í fararbroddi í jafnréttismálum. Meginhlutverk jafnréttisnefndar er að vera háskólaráði til ráðgjafar um jafnréttismál í víðum skilningi. Nefndinni er þannig ætlað að veita ráðgjöf sem stuðlar að jafnrétti og spornar gegn mismunun innan háskólasamfélagsins hvort sem er á grundvelli kynferðis, fötlunar, kynhneigðar, þjóðernis, uppruna, litarháttar, trúarbragða og stöðu að öðru leyti. Miðað er við að jafnvægi ríki á milli áhrifa kvenna og karla innan Háskólans í kennslu, rannsóknum og stjórnun og að rödd fólks sem tilheyrir minnihluta hópum innan Háskólans heyrist og að það eigi jafn greiðan aðgang að gæðum háskólasamfélagsins og aðrir háskólaborgarar.

Verkefni jafnréttisnefndar er m.a.

Að hafa reglulega í samvinnu við rektor og háskólaráð frumkvæði að endurskoðun jafnréttisstefnu Háskólans, ásamt því að vinna að jafnri stöðu karla og kvenna.

Að hafa eftirlit með framkvæmd stefnunnar í samvinnu við jafnréttisfulltrúa.

Að fylgja því eftir að deildir, stofnanir og stjórnsýsla skili reglulega jafnréttisáætlunum.

Að standa fyrir umræðum og fræðslu um jafnréttismál innan Háskólans.

Að vera rektor og háskólaráði ráðgefandi um jafnréttismál og veita umsagnir um erindi sem rektor og háskólaráð beina til nefndarinnar.

Að stuðla að því að stúdentar og starfsmenn af erlendum uppruna eigi greiðan aðgang að gögnum og gæðum háskólasamfélagsins.

Að hafa samráð við ráð um málefni fatlaðra.

Jafnréttisnefnd skal funda reglulega og gerir formaður hennar rektor reglulega grein fyrir starfsemi nefndarinnar. Þá skal formaður gera háskólaráði grein fyrir stöðu í jafnréttismálum innan Háskólans árlega.

Í jafnréttisnefnd sitja fimm manns, þ.á.m. einn fulltrúi stúdenta. Nefndin er skipuð af háskólaráði samkvæmt tilnefningu rektors, en jafnréttisfulltrúi og skrifstofustjóri kennslusviðs sitja jafnframt fundi nefndarinnar. Jafnréttisfulltrúi starfar að framgangi og eftirfylgni við framkvæmd jafnréttisstefnu Háskóla Íslands og áherslumálum hverju sinni. Jafnréttisfulltrúi er tengiliður nefndarinnar við rektor og stjórnsýslu og mikilvægt að upplýsingar berist greiðlega á milli þeirra sem koma að jafnréttismálum innan Háskólans.

Fulltrúar jafnréttisnefndar

Jafnréttisáætlun

Stefnumál

Útgefið efni

deila á facebook