Umsókn um grunnnám
Umsóknarfrestur um grunnnám fyrir háskólaárið 2012-2013 er til 5. júní 2012. Athugið þó að skráningarfrestur í inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjáfun er til 20. maí 2012. Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum.
Rafrænt umsóknareyðublað er aðgengilegt hér á umsóknartíma. Ráðgert er að móttaka umsókna hefjist í mars.
Mikilvægt er að væntanlegir umsækjendur kynni sér vel upplýsingarnar hér fyrir neðan, áður en lengra er haldið.
Skila þarf staðfestu ljósriti/afriti úr framhaldsskóla (ljósriti/afriti með bláum stimpli og undirritun) af öllu stúdentsprófsskírteininu eins fljótt og hægt er og eigi síðar en 10. júní 2012. Umsækjendur sem í umsóknarferlinu veittu Háskóla Íslands leyfi til að sækja rafrænt stúdentsprófskírteini úr Innu þurfa ekki að skila staðfestu afriti.
Nánari upplýsingar veitir Nemendaskrá HÍ sem er staðsett í Háskólatorgi, 3. hæð, s. 525 4309, netfang nemskra@hi.is.
Nánar um umsóknarferlið
-
Inntökuskilyrði í Háskóla Íslands: Umsækjendur sem hefja nám í Háskólanum skulu hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Sjá nánar Reglur um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands.
-
Undanþágur frá inntökuskilyrðum í bakkalárnám: Á háskólaárinu 2012-2013 nýtir Háskólinn sér heimild til að veita undanþágur frá formlegum inntökuskilyrðum. Athugið þó að heimildin gildir ekki um nám til BA-prófs í lögfræði, samkvæmt samþykkt háskólaráðs 17. mars 2011. Einungis þeir sem lokið hafa stúdentsprófi geta því sótt um bakkalárnám í lögfræði.
Tekið verður við umsóknum um undanþágur frá inntökuskilyrðum í deildir HÍ til 5. júní 2012. Umsóknum um undanþágur skal skila rafrænt, með sama hætti og öðrum umsóknum nýnema (sjá hér að ofan). Þeim skulu fylgja staðfest vottorð um nám og störf að loknu skyldunámi og önnur þau gögn sem umsækjandi telur að stutt geti umsóknina.
-
Hvað gerist eftir að ég hef skilað inn umsókn? Leitast er við að afgreiða umsóknir innan þriggja vikna frá því að þær og öll fylgigögn berast, eða í síðasta lagi 30. júní 2012. Undanþáguumsóknir eru afgreiddar eigi síðar en tveimur mánuðum frá lokum umsóknarfrests.
-
Skrásetningargjald: Sé umsókn samþykkt birtist rafrænn reikningur fyrir skrásetningargjaldi, kr. 60.000, í netbanka umsækjanda í júní. Reikninginn ber að greiða í síðasta lagi 10. júlí 2012 (eindagi gjaldsins). Greiðsluseðill á pappír er einungis sendur á lögheimili þeirra sem óska sérstaklega eftir því í rafrænni umsókn. Skrásetning til náms við Háskóla Íslands tekur gildi við greiðslu skrásetningargjaldsins. Gjaldið er ekki endurkræft.
Ef skrásetningargjaldið er ekki greitt á gjalddaga/eindaga er litið svo á að umsækjandi hyggist ekki stunda nám við HÍ á háskólaárinu 2012-2013.
-
Hvernig get ég fylgst með afgreiðslu umsóknar? Við umsókn fær umsækjandi úthlutað veflykli sem hann þarf að varðveita. Með honum getur hann farið inn á slóðina nynemar.hi.is og fylgst með framgangi umsóknarinnar. Ef veflykill glatast þarf umsækjandi að hafa samband við Nemendaskrá HÍ.
-
Hvað gerist eftir að umsókn hefur verið samþykkt? Þegar umsókn hefur verið samþykkt birtist rafrænn reikningur fyrir skrásetningargjaldi í netbanka í júní. Skrásetningargjaldið er kr. 60.000 fyrir skólaárið 2012-2013. Þegar greiðsla hefur farið fram sækir umsækjandi um notandanafn og lykilorð með því að fara á slóðina nynemar.hi.is, sjá leiðbeiningar hér fyrir neðan.
-
Hvað geri ég ef rafrænn reikningur eða greiðslukrafa birtist ekki í netbanka? Ef hvorki krafa né rafrænn reikningur birtast í netbankanum og umsækjandi getur ekki greitt rafrænt skal hafa samband við Nemendaskrá HÍ, s. 525 4309, netfang nemskra@hi.is, fyrir eindaga hverju sinni.
-
Hvers vegna þarf nýnemi að hafa notandanafn og lykilorð? Notandanafn og lykilorð eru frumskilyrði þess að nálgast megi upplýsingar um námsframvindu, hafa samskipti við kennara og nýta sér tölvuþjónustu skólans. Notandanafn er jafnframt tölvupóstfang hjá skólanum (notandanafn@hi.is).
Til að sækja sér notandanafn og lykilorð þarf að fara aftur á slóðina nynemar.hi.is (á sama stað og fylgst var með framgangi umsóknar) og slá á ný inn veflykil og kennitölu. Nauðsynlegt er að hinkra við því tvær klukkustundir geta liðið þar til aðgangur að kerfinu verður virkur. Að þeim tíma liðnum getur umsækjandi skráð sig inn og byrjað að nýta sér Uglu, innra vefkerfi Háskóla Íslands. Þar fléttast upplýsingakerfi Háskólans saman í eina heild og hver nemandi fær aðgang að upplýsingum sem að honum lúta. Þar geta nemendur m.a. séð stundatöflu sína og nálgast yfirlit um einkunnir, námsferil og námskeið.

