Húsnæði og aðstaða



Háskóli Íslands starfar í mörgum byggingum á þremur svæðum. Í Vatnsmýri og Vesturbæ, í Stakkahlíð og á Laugarvatni. Samtals er húsnæði skólans 73.000 m2. Háskólinn er lifandi samfélag sem býður nemendum og starfsfólki fyrsta flokks starfsaðstöðu. Í flestum byggingum er lesaðstaða og góð aðstaða til hópavinnu og fjöldi tölvuvera er víða um svæðið. Með Stúdentakortinu hafa nemendur sólarhringsaðgang að sinni heimabyggingu.

Fjölbreytt þjónusta í boði

Kaffistofur eru í mörgum byggingum og Háma í Háskólatorgi, mötuneyti stúdenta og starfsfólks, býður upp á heitan mat í hádeginu og fjölbreytt úrval af mat og drykk. Íþróttaaðstaða er til fyrirmyndar og hafa nemendur aðgang að tækjasal og fjölbreyttri leikfimi gegn vægu gjaldi. Félagsstofnun stúdenta rekur Stúdentagarða með allt frá einstaklingsíbúðum upp í stórar fjölskylduíbúðir. Á leikskólum stúdenta geta börn allt frá 6 mánaða aldri fengið pláss.