Í hönnunarstaðli Háskóla Íslands (.pdf) er að finna öll sniðskjöl sem Háskólinn notar í kynningarskyni. Hugmyndin með hönnunarstaðli Háskóla Íslands er sú að Háskólinn fái eina stílhreina ásýnd í kynningarefni sínu sem hefur um leið samhæfð, sterk og vel undirbyggð skilaboð.
Hér er m.a. að finna prentgripi og staðlað útlit á hartnær öllu kynningarefni Háskóla Íslands. Undir þetta flokkast allar auglýsingar, bæklingar, ritlingar, ritgerðir, litir fræðasviða, skyggnur, veggspjöld, undirskriftir fyrir tölvupóst, bréfsefni, nafnspjöld og margt fleira.
Hönnunarstaðallinn er hér í pdf-skjali, þar er einfalt að smella á hvern einstakan lið eða hverja mynd, sem vísar á slóð inni á vefsvæði Háskóla Íslands. Þar liggja viðkomandi sniðskjöl til niðurhals. Mjög einfalt er að hlaða skjölunum niður á einkatölvu og hefja vinnslu með viðkomandi sniðskjal.
Efnisyfirlit er fremst í hönnunarstaðlinum sem gerir einfalt að finna þau sniðskjöl sem eru fyrir hendi.
Hönnunarstaðall
Hönnunarstaðall Háskóla Íslands
Síða uppfærð / breytt 8. desember 2011

