Háskólatorg
Þann 1. desember 2007 voru tvær nýjar byggingar á háskólasvæðinu, Háskólatorg og Gimli, teknar í notkun. Byggingarnar tengjast eldri byggingum á svæðinu og mynda stóran kjarna í miðju háskólasvæðisins. Háskólatorg hýsir m.a. þjónustustofnanir fyrir nemendur s.s. Alþjóðaskrifstofu, Nemendaskrá og Náms- og starfsráðgjöf. Einnig Félagstofnun stúdenta, Bóksölu stúdenta, veitingastaðinn Hámu og Stúdentaráð. Þar er auk þess tölvuver, lesrými, kennslustofur og skrifstofur. Á torginu sjálfu eru haldnar ýmsar skemmtilegar uppákomur og þar iðar allt af lífi frá morgni til kvölds.
Þjónustuborð
Þegar nemendur þurfa þjónustu af einhverju tagi er Þjónustuborðið á Háskólatorgi fyrsti staðurinn sem þeir leita til. Þar má m.a. fá ýmis vottorð um skólavist, yfirlit yfir námsferla og panta staðfest afrit af brautskráningarskírteinum. Vottorð og námsferilsyfirlit eru afgreidd samstundis en afgreiðslufrestur afrita af brautskráningarskírteinum er minnst einn sólarhringur. Vottorð, yfirlit og afrit brautskráningarskírteina kosta 350 kr. Einnig er hægt að fá útprentaðar námskeiðslýsingar á Þjónustuborðinu og kosta þær allt að 1.750 kr.
Á Þjónustuborðinu er einnig hægt að kaupa prentkvóta og þar eru stúdenta- og strætókort afhent. Þar er tekið á móti læknisvottorðum vegna veikinda í lokaprófum. Vottorð vegna veikinda í hlutaprófum eiga að berast á skrifstofu deildar eða til viðkomandi kennara. Á Þjónustuborðinu skrá nemendur sig á námskeið hjá Náms- og starfsráðgjöf og fá lykilorð í Ugluna. Starfsmenn Þjónustuborðsins sjá um bókanir í stofur og fundarherbergi Háskólatorgs.
Ýmis önnur þjónusta er veitt á Þjónustuborðinu og geti starfsmenn ekki afgreitt málið vísa þeir því rétta leið.
Afgreiðslutími Þjónustuborðsins er frá 8:30 til 18 mánudaga til fimmtudaga og föstudaga frá 8:30 til 16.
Frá miðjum júní fram í miðjan ágúst er afgreiðslutíminn frá 8:30 til 16:30 mánudaga til fimmtudaga og föstudaga frá 8:30 til 16.
Síminn er 525 5800, fax 525 5802 og netfangið haskolatorg@hi.is.
Starfsmenn Þjónustuborðsins eru:
- Anna Birna Halldórsdóttir, þjónustustjóri
- Ása Valgerður Gunnsteinsdóttir, þjónustufulltrúi
- Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, þjónustufulltrúi
- Sigríður Þórsdóttir, þjónustufulltrúi
Reiknistofnun Háskólans er með þjónustu í Háskólatorgi og þar geta nemendur t.d. fengið aðstoð við að tengjast netinu og prenta út. Hjá Reiknistofnun í Háskólatorgi er opið frá 8 til 16.

