GRE

GRE® - Graduate Record Examinations® - General Test / Subject Tests

Háskóli Íslands er viðurkenndur af ETS® (Educational Testing Service) sem prófstaður fyrir almenn GRE®-próf (GRE® General Test) og námsgreinamiðuð próf (GRE® Subject Tests). Um er að ræða skrifleg próf (Paper Based Test) og fara þau fram í húsnæði Háskólans u.þ.b. tvisvar á ári.

Skólaárið 2011-2012 eru almenn GRE-próf fyrirhuguð lau. 22. október 2011 og lau. 11. febrúar 2012.
Námsgreinapróf er fyrirhugað lau. 15. okt. 2011. Skráning í prófin fer fram í gegnum vefsetur GRE-prófa hjá ETS. 

Skráningarfrestur rennur út u.þ.b. 5 vikum fyrir settan prófdag, en próftökum er bent á að skrá sig tímanlega.

Bent skal á að á prófstað þurfa próftakar að framvísa gildum skilríkjum (vegabréfi eða ökuskírteini). Þeir þurfa einnig að hafa með sér GRE Admission Ticket.

Nánari upplýsingar um GRE-próf og skráningu í þau má fá á vefsetri ETS.

deila á facebook