| Framhaldsnam A-Ö |
| Kennsluskrá |
| Námsupplýsingar |
| Umsókn um nám |
| Miðstöð framhaldsnáms |
Upplýsingar um framhaldsnám
Meistara- og doktorsnám kallast einu orði framhaldsnám. Meistaranám er önnur háskólagráða og henni lýkur með MA, MS eða M.Ed. gráðu. Námið tekur að jafnaði tvö ár. Doktorsnám tekur að jafnaði 3-6 ár og lýkur með Ph.d. gráðu. HÍ býður ýmsar styttri námsleiðir á framhaldsstigi, t.d. diplómanám, hagnýtt nám og nám til starfsréttinda.
Gríðarleg uppbygging
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á framhaldsnáminu undanfarin ár. Nú eru rúmlega 3500 nemendur skráðir í framhaldsnám við skólann, þar af rúmlega 400 í doktorsnám. Háskóli Íslands er eini háskólinn hérlendis sem býður upp á framhaldsnám á öllum fræðasviðum. Námsframboðið er afar fjölbreytt og hafa nemendur val um ríflega 200 námsleiðir.
Rannsóknartengt nám og nýsköpun
Háskóli Íslands er rannsóknaháskóli. Allt doktorsnám og mikill hluti meistaranáms byggist á rannsóknum. Nemendur njóta handleiðslu fremstu vísindamanna þjóðarinnar í rannsóknum sínum og skapa í samstarfi við þá nýja þekkingu.

