Háskóli Íslands og Kennaraháskóli Íslands sameinuðust undir nafni og merkjum Háskóla Íslands 1. júlí 2008 og samtímis tók gildi nýtt stjórnkerfi og skipulag skólans.
Nýja skipulagið gerir ráð fyrir því að skólinn skipist í fimm fræðasvið sem hvert um sig skiptist í 3-6 deildir.
Fræðasviðin eru:
- Félagsvísindasvið
- Heilbrigðisvísindasvið
- Hugvísindasvið
- Menntavísindasvið
- Verkfræði- og náttúruvísindasvið
Nánari upplýsingar má fá inn á heimasíðu hvers fræðasviðs fyrir sig.

