Að stunda háskólanám snýst ekki aðeins um að sitja fyrirlestra og læra heima, heldur er félagslífið einnig afar mikilvægur þáttur af háskólalífi og gerir Háskóli Íslands sér fulla grein fyrir því. Stúdentaráð stendur fyrir stórum atburðum ætluðum öllum nemendum skólans eins og Októberfest og próflokaballi bæði á haust- og vormisseri.
En einnig rekur hver deild sitt nemendafélag og eru nemendur hvattir til þess að skoða hvaða félag stendur þeim næst.
Einnig býðst nemenumtækifæri á því að taka þátt í annarsskonar félaglífi s.s. Háskóladansinum þar sem hægt er að læra hressilegt Boogie Woogie, hip-hop, lindy hop, salsa og swingað rokk og rólog margt fleira.
Stúdentaleikhúsið stendur alltaf fyrir sínu og eru settar upp tvær sýningar á ári á vegum þeirra. Í Stúdentaleikhúsinu er alls konar fólk þó flest eigi það sameiginlegt að vera ofurlítið athyglissjúkir stúdentar við HÍ (þó eina skilyrðið fyrir inngöngu sé að vera búin/n með framhaldsskólapróf).
Tónelskir stúdentar við Háskólann einnig að geta fundið sér eitthvað við hæfi þar sem að við skólann eru starfræktir tveir kórar, Kvennakór HÍ og Háskólakórinn.
Auk þess eru stafrækt hin ýmsu Hagsmunafélögvið HÍ.
- Félag Femíniskra stúdenta
- ESN- Reykjavík sem er félag erlendra nemenda við HÍ
- Hagsmunafélag foreldra við HÍ
- Manía sem er geðverndarfélag innan HÍ
- Q- Félag hinsegin stúdenta sem er ætlað þeim sem eru samkynhneigðir, tvíkynhneigðir, trans, gangkynhneigðir eða bara hinsegin
- Skyn sem er hagsmunafélag stúdenta innan Háskóla Íslands með sértæka námsörðugleika að stríða.

