Erlendir skiptistúdentar

Þeir sem vilja gerast skiptistúdentar hefja ferlið á því að hafa samband við heimaskóla sinn. Ef erlendur heimaskóli tilnefnir stúdent til skiptináms við Háskóla Íslands, skal umsjónarmaður skiptináms við þann háskóla hafa samband við Alþjóðaskrifstofu HÍ um tilnefninguna. Alþjóðaskrifstofa sendir stúdentum sem hafa verið tilnefndir nauðsynlegar upplýsingar um umsóknarferlið í tölvupósti.

Skilyrði fyrir skiptinámi við Háskóla Íslands eru eftirfarandi:

  • Samkomulag, sem tekur til viðkomandi námsgreinar, skal vera í gildi milli Háskóla Íslands og heimaskólans
  • Stúdentinn skal hafa lokið 60 ECTS-einingum í heimaskóla.

Frestur til að sækja um skiptinám á haustmisseri eða fyrir heilt háskólaár er 1. maí ár hvert.

Frestur til að sækja um skiptinám á vormisseri eingöngu er til 1. október.

deila á facebook