Í Háskóla Íslands hljóta nemendur framúrskarandi háskólamenntun og öðlast víðtæka þjálfun í gagnrýninni hugsun og sjálfstæðum vinnubrögðum. Þeir verða forystumenn á fjölmörgum sviðum samfélagsins og leiðtogar í þekkingarsamfélagi framtíðarinnar. Kennarar Háskólans geta sér gott orð á alþjóðavettvangi fyrir öflugt vísinda- og fræðastarf og laða til sín framúrskarandi íslenska og erlenda háskólanema. Háskólinn á samstarf um rannsóknir og kennslu við háskóla og háskóladeildir í fremstu röð í heiminum. Skólinn verður driffjöður framþróunar í íslensku atvinnu- og þjóðlífi og nýtur trausts og virðingar innan lands og utan.
Laust er til umsóknar starf dósents í stærðfræði við Raunvísindadeild. Starfið er á sviði hagnýtrar stærðfræði.
Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi í stærðfræði eða hafa lokið öðru sambærilegu námi. Ætlast er til að viðkomandi stundi öflugar rannsóknir í reiknifræði eða þeim greinum stærðfræði sem tengjast reiknifræði. Ætlast er til að viðkomandi taki þátt í uppbyggingu á framhaldsnámi í reiknifræði. Æskilegt er að viðkomandi geti kennt námskeið í tölulegri greiningu og hlutafleiðujöfnum auk almennra undirstöðunámskeiða í stærðfræði. Auk þess er krafist góðrar samstarfshæfni og lipurðar í mannlegum samskiptum.
Ráðið verður í starfið til fjögurra ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr, 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 458/2000.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna um Háskóla Íslands nr. 458/2000.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf um mitt ár 2009 eða fyrr eftir samkomulagi.
Umsóknir skulu berast á rafrænu formi á netfangið bmz@hi.is. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og greinargerð um áform ef til ráðningar kemur. Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Umsókn og umsóknargögn sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti til vísindasviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 6, 101 Reykjavík. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin.
Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Stefánsson, prófessor í síma 525 5915 netfang gunnar@hi.is.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

