Brautskráning kandídata frá Háskóla Íslands
Febrúarbrautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fer fram í Háskólabíói, laugardaginn 25. febrúar nk. kl. 13.00. Kandídatar fá þá afhent prófskírteini sín við hátíðlega athöfn.
Kandídötum er ætlað afmarkað svæði og eru beðnir um að mæta ekki síðar en kl. 12.00. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.
Prófskírteini verða afhent í röð eftir sviðum: Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið, Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið.
Kandídatar fá heimsent bréf með nánari upplýsingum.
Prófskírteini og viðaukar
Við brautskráningu fá allir kandidatar afhent prófskírteini og viðauka með skírteini þar sem fram koma á stöðluðu formi upplýsingar um það nám sem lokið er. Prófskírteinið er á íslensku ásamt staðfestri enskri þýðingu, en viðaukinn á íslensku og ensku. Þessi gögn eru afhent kandidötum án endurgjalds. Ef kandidat er fjarverandi við brautskráningu þarf hann að nálgast þau síðar hjá sinni deild.
Dæmi um viðauka við prófskírteini gefinn út af Háskóla Íslands:
Skírteinisviðauki á íslensku (.pdf)
Skírteinisviðauki á ensku (.pdf).
Fyrri brautskráningar frá Háskóla Íslands, aftur til 1995:
- Brautskráningar 2006
Brautskráningar 2005
- Brautskráningar 2004
- Brautskráningar 2003
- Brautskráningar 2002
- Brautskráningar 2001
- Brautskráningar 2000
- Brautskráningar 1999
- Brautskráningar 1998
- Brautskráningar 1997
- Brautskráningar 1996
- Brautskráningar 1995

